Frjáls verslun - 01.10.2006, Side 82
82 F R J Á L S V E R S L U N • 1 0 . T B L . 2 0 0 6
JÓLIN KOMA
Stjórnendaskóli Háskólans í Reykjavík hefur fengið einkaum-boð á Íslandi fyrir lausnir hins heimsþekkta FranklinCoveys. Í haust hófust hjá skólanum vinnustofur eða þjálfun í „sjö
venjum til árangurs“ sem byggist á lausnum FranklinCoveys. Þetta
er ítarleg og einstaklingsmiðuð leið til að rækta einstaklinga og
liðsheildir, laða fram það besta í mönnum og ná hámarksárangri í
lífi og starfi. Mikil ánægja hefur verið með vinnustofurnar að sögn
Guðrúnar Högnadóttur, þróunarstjóra Stjórnendaskólans, sem leiðir
samstarfið við FranklinCovey.
Lausnir FranklinCoveys eru heildrænt kerfi, byggt á bókinni
„7 venjum til árangurs“ sem er ein mest selda stjórnunarbók allra
tíma og ein virtasta aðferð við þjálfun einstaklinga til persónulegrar
forystu. „Við komum til móts við þá sem vilja tileinka sér lausnir
FranklinCoveys með því að fara inn í fyrirtæki og vinna
þar með starfsfólki og einnig með opnum vinnustofum
sem fólk getur skráð sig í og þá taka bæði fyrirtæki og
stéttarfélög þátt í kostnaði,“ segir Guðrún.
Bókin „7 venjur til árangurs“ kom fyrst út árið 1986
og hefur verið þýdd á 38 tungumál. Guðrún segir að
hún sé eins og gott vín, verði stöðugt betri, og margir
líti á hana sem sína biblíu við að ná góðum árangri í
starfi, rekstri og einkalífi. Í Bandaríkjunum eru 90%
fyrirtækjanna á Fortune 100 listanum viðskiptavinir
FranklinCoveys og meira en 75% á Fortune 500 lista-
num, sem sýnir vel þá virðingu sem kerfið nýtur.
Guðrún Högnadóttir með námsgögnin.
Mannrækt
sem þjónar
hagsmunum
fyrirtækjanna
Stjórnendaskóli Háskólans í Reykjavík
hefur gengið til samstarfs við FranklinCovey,
en fyrirtækið er skráð í kauphöllina
í New York (NYSE) og er eitt virtasta
fyrirtæki sinnar tegundar.
STJÓRNENDASKÓLI HR:
Fjórþætt þjálfun Þjálfunin í Stjórnendaskólanum kallast ekki nám-
skeið heldur miklu fremur heildarlausn og er skipt í fjóra þætti: 1.
Rafrænt 360° frammistöðumat þar sem þátttakandi fær 12 umsagn-
araðila til að meta frammistöðu sína og setur sér viðmið með tilliti
til umsagnanna. 2. Eins til þriggja daga vinnustofa sem einblínir á
árangur á vinnustað og persónulegan árangur hvers og eins. Þar fara
m.a. fram verklegar æfingar, sjálfsmat, fyrirlestrar og fjölbreyttar og
gagnvirkar kennsluaðferðir. Lögð er áhersla á árangur á vinnustað
og aðferðir sem nýtast í starfi, lífi og samfélaginu. 3. Tímastjórn-
unarkerfi PlanPlus sem er hugbúnaður sem vinnur með Microsoft
Outlook til tímastjórnunar, verkefnastjórnunar og áætlanagerðar. 4.
Sjö vikna samningur eða sjálfsnám sem fylgni í kjölfar vinnustofu.
Þar geta menn metið eigin framvindu, miðlað þekkingu til annarra
og nálgast ítarefni á persónulegri heimasíðu.
Venjurnar sjö Vinnustofan er helguð venjunum sjö sem eru: 1) taktu
af skarið, 2) í upphafi skal endirinn skoða, 3) kapp er best með forsjá,
4) vinnum saman, 5) „eyrum hlýðir en augum skoðar, svo nýsist
fróðra hver fyrir“, 6) samvirkni til árangurs og 7) brýndu kutann.
Venjurnar leiða til jafnvægis í lífi og starfi, til að vinna að umbótum
og bæta við þekkingu sína og færni.
„Þetta er allt önnur nálgun en beitt hefur verið
til að þjálfa einstaklinga og liðsheildir. Þetta er
mannrækt sem þjónar hagsmunum fyrirtækj-
anna og er fjárfesting sem skilar sér margfalt
inn í fyrirtækin aftur. Rannsóknir hafa sýnt að
árangurinn kemur fram í auknum hagnaði, auk-
inni ánægju starfsmanna, meira frumkvæði og
stefnufestu starfsmanna, og betra samstarfi. Allt eru
þetta lykilatriði til árangurs íslenskra fyrirtækja,“
segir Guðrún Högnadóttir.
Heildrænt ferli 7 venja til árangurs hjálpar einstaklingum,
fyrirtækjum og stofnunum að ná betri árangri í lífi, starfi og
rekstri og byggir á mest seldu stjórnunarbók allra tíma:
7 Habits of Highly Effective People eftir Stephen Covey.
Þú vinnur með sjálfan þig og þinn vinnustað á áhrifaríkum
og skemmtilegum vinnustofum og uppskerð veganesti fyrir
lífstíð. Innifalin eru m.a. vönduð kennslugögn, öflugur
PlanPlus hugbúnaður, hljóðbækur og myndbönd, 360° mat
á frammistöðu og persónuleg heimasíða til sjálfsnáms.
Nýttu þér þá þjálfun sem 90% Fortune100 fyrirtækjanna bjóða
sínum leiðtogum til persónulegrar starfsþróunar.
NÝ HUGSUN
FYRIR FRAMSÆKIN
FYRIRTÆKI OG
ÖFLUGA LEIÐTOGA
Stjórnendaskóli Háskólans í Reykjavík
og FranklinCovey kynna:
Hafðu samband og kynntu þér lausnir
Stjórnendaskólans og FranklinCovey:
Guðrún Högnadóttir, þróunarstjóri
Sími: 599-6225
covey@ru.is
www.hr.is
HR-franklincovey-fv-tp.indd 1 12/5/06 3:40:54 PM