Tímarit Máls og menningar - 01.04.1946, Síða 34
24
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR
Það var ekki af einskærum brjóstgæðum, að Rússland keisarans
rétti okkur hjálparhönd, heldur sökum mjög áþreifanlegra hags-
muna. Það var mikilvægt fyrir ríki zarsins, að Eystrasalt yrði ekki
lokað innhaf, þar sem annað stórveldi væri alls ráðandi. Lyklavöldin
við Eyrarsund voru hezt komin í höndum lítils og vinsamlegs ríkis
eins og Danmerkur. Og hið sama á algerlega við um Ráðstjórnar-
ríkin, sem ekki hafa annarra hagsmuna að gæta, að því er varðar
dönsk stjórnmál, en að landið sé frjálst og öðrum óháð.
Við þetta bætist enn eitt, sem er mjög mikilvægt frá sjónarmiði
smáríkjanna. Þýzkaland nazismans lýsti sífellt yfir því, að nazisminn
væri engin útflutningsvara, meðan það jafnframt reyndi að leggja
undir sig heiminn, en hins vegar hafa Ráðstjórnarríkin alltaf haldið
fram sjálfsákvörðunarrétti þjóðanna, og þau hafa fylgt þeirri stefnu
nákvæmlega í öllum aðgerðum sínum á sviði þjóðernismála að því
er tekur til hinna 136 þjóða, er búa innan þessa ríkjasambands.
Hvort sem til þessara þjóða teljast milljónir eða aðeins fáar þús-
undir manna, njóta þær sama réttar og stuðnings frá sambandsrík-
inu til að leggja rækt við tungu sína, menningu og siði. Margir
mikilsvirtir menn í vestrænum löndum hafa látið í Ijós aðdáun sína
á hinu nýja, frjálslyndislega formi ættjarðarástar, er skapazt hefur
í Ráðstjórnarríkjunum. Nýskeð benti Ickes innanríkisráðherra
Bandaríkjanna á það sem fyrirmynd fyrir Bandaríkin. Þetta banda-
lag gerólíkra þjóða, sem er sundurleitara en bandalag allra ann-
arra Evrópuþjóða myndi verða, starfar af undraverðri samstillingu
þrátt fyrir sjálfstæði hinna einstöku þjóða — eða kannski öllu held-
ur vegna þess. Styrkur þess og samheldni hefur fullkomlega staðizt
prófraun sína í heimsstyrjöldinni.
Við Danir höfum fulla ástæðu til að eyða hugsanlegri tortryggni
vorri og líta vinsemdaraugum til Ráðstjórnarríkjanna. An hinna
stórkostlegu afreka Rauða hersins myndi kannski horfa dauflega
fyrir þjóð vorri að því er snerti frelsi hennar og sjálfstæði í fram-
tíðinni.
Dálítið raunsæi af vorri hálfu myndi ekki heldur spilla. Engin
þjóð getur lifað af hleypidómum, og okkur er í sjálfsvald sett að
eignast góðan viðskiptavin, þar sem er hið volduga ríki, er nær yfir
sjötta hluta jarðarinnar og hefur innan sinna vébanda tíunda hluta