Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1973, Side 104

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1973, Side 104
Tímarit Máls og menningar sögu Précis d'histoire de la Révolution franQaise eftir marxíska sagnfræðinginn Albert Soboul, sem út kom árið 1962 og til er í norskri þýðingu í tveim bindum, 1969. Byltingarsaga Mathiez er mikil sagn- fræði. Höfundurinn stendur að sjálfsögðu á gömlum merg. Þegar hann hóf að kanna sögu byltingarinnar tók hann við miklum arfi sögulegra rannsókna 19. aldar. Franska byltingin hafði vart gengið sín fyrstu spor, er menn tóku að skilgreina hana sögulega. Sá er þar reið fyrstur á vaðið var Irinn Edmund Burke, enskur stjórnmálamaður og pólitískur rithöfundur, sem réðst lieiftarlega á frönsku byltinguna í bók sinni Reflections on the Revolution in France, sem birtist þegar í nóvember 1790 og varð gunnfáni aðals og afturhalds um alla Evrópu. Hann bannfærði afnám hinna aðalbornu sérréttinda og hins stigbundna stéttakerfis. Sjálfur var hann fulltrúi Whiggaflokksins (síðar Frjálslynda flokks- ins), er hafði logsoðið hagsmuni borgara- stéttar og aðalborinna stórgósseigenda á Englandi. Burke varð einna fyrstur manna til að boða krossferð afturhaldsins í Evrópu gegn frönsku byltingunni. Ári eftir að Burke skrifaði bók sína fulla hat- urs og heiftar, svaraði Englendingurinn Thomas Paine honum í bók sinni Rights of Man, varnarriti frönsku byltingarinnar. Hann hafði tekið þátt í uppreisn nýlendna Ameríku og gegndi mikilvægu embætti í byltingarstjóm uppreisnarmannanna. Upp- hafsorðin í riti því er hann samdi 1777, The Crisis, á örlagastundu frelsisstríðsins í Ameríku, geta ekki síður verið einkunn- arorð frönsku byltingarinnar allt frá upp- hafi til þess er hún rann skeið sitt á enda: These are the times that try merís souls - þetta eru tímamir sem reyna á þolrifin í sálum manna. Hann mátti sann- reyna þetta á sjálfum sér: fyrir bók sína um Mannréttindin varð hann að flýja Eng- land og leita skjóls á Frakklandi þar sem honum var tekið með kostum og kynjum, kosinn á þjóðþingið, en varpað í fangelsi síðar og slapp fyrir tilviljun undan fallöx- inni. Rit þeirra Burkes og Paines voru hin fyrstu er sálgreindu frönsku byltinguna sögulega, fyrsti ágreiningurinn í dómum um hana. Allt fram á okkar daga hefur hin mikla bylting skipt sagnfræðingum í flokka, innbornum og erlendum. En svo sem vænta má hafa sagnfræðilegar deilur um byltinguna hvergi verið háðar af svo logandi ástríðu og á Frakklandi. Og bylt- ingin er síður en svo einkaviðfangsefni þeirra er hafa sagnfræði að atvinnu. Beint og óbeint hefur byltingin verið viðfangs- efni allra stétta hins franska þjóðfélags, enginn atburður hefur rist dýpra í sögu þess. Frakkland nútímans er skilgetið af- kvæmi byltingarinnar miklu: franskir borg- arar, franskir bændur og franskir verka- menn - allir geta þeir rakið ætt sína til hennar, svo víðfaðma og einstök er hún meðal byltinga sögunnar. Elzta kynslóð borgaralegra sagnfræðinga franskra, og má þar telja meðal hinna frægustu Guizot, Mignet, Michelet og Thiers, voru allir fæddir á byltingarárun- um, fyrir aldamótin 1800 og stóðu í tím- anum mjög nærri viðburðunum, sem þeir áttu síðar eftir að færa í letur. Sumir þess- ara sagnfræðinga voru starfandi stjóm- málamenn, tveir þeirra jafnvel ráðherrar, Guizot og Thiers. Þótt þessir sagnfræðingar væru ekki samlitir í pólitískum skoðunum, þá var það þeim öllum sameiginlegt, að þeir greindu fyrstir réttilega sögulegt inn- tak hinnar miklu byltingar: að hún væri borgaraleg bylting, er hefði skipað borg- arastéttinni við háborð þjóðfélagsins og svipt hinar gömlu valdstéttir, aðal og klerka sérréttindum sínum. Eftir langa þróun hafði borgarastéttinni vaxið svo fisk- 310
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.