Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.04.1983, Side 37

Tímarit Máls og menningar - 01.04.1983, Side 37
Saga og form Meðvitund um sögulegt afstæði flestra fyrirbæra er nauðsynleg við mat á eldri bókmenntaverkum. Hún hefur verið sterk meðal enskra sagnfræðinga og menningarrýna (E. P. Thompson, Raymond Williams) og sömu sögu er að segja um Frakka (Michel Foucault). Það skiptir til dæmis máli varðandi greiningu miðaldabókmennta (þ.á m. íslenskra) að átta sig á að höfundar þeirra greindu yfirleitt ekki á milli skáldskapar og söguritunar einsog nú er gert, og að „sannleikur" merkti fyrir þeim orð guðs eða útlistun þess. Menntuðum miðaldamönnum Evrópu voru tæpast tiltæk þau hugtök sem gerðu þeim kleift að vera guðleysingjar í nútímamerkingu. Oll hugtök okkar, sem við höfum tilhneigingu til að álíta algiid, hafa gerbreyst á síðustu öldum. „Maðurinn" sem viðfangsefni sjálfs sín í sérstökum fræðigreinum (sálfræði, félagsfræði, hagfræði) er tvö hundruð ára gamalt fyrirbæri; jafnvel tímaskyn okkar hefur gerbreyst með tilkomu iðnvæðingarinnar, verksmiðj- unnar og vinnuaga hennar. Karl Marx greindi kapítalisma síns tíma, en það er ekki til nein einhlít aðferð, „Marxisminn“, sem hægt er að beita á hliðstæðan hátt og í eitt skipti fyrir öll á eldri söguskeið, á það meira eða minna tilviljunarkennda úrval úr textasafni fortíðarinnar sem við köllum sögu. IV A kaþólskum síðmiðöldum og endurreisnartíma í Evrópu runnu einu sinni á ári upp dagar þegar alþýðan gat dregið kúgara sína miskunnarlaust sundur og saman í háði og ekkert var svo heilagt að ekki mætti hlæja að því, allri skipan samfélagsins var snúið á haus. Þetta var karnívalið, kjötkveðjuhátíð- in. Rússneski marxistinn Michail Bachtin hefur rakið sérstaka bók- menntagrein til þessarar alþýðumenningar, „hláturkúltúrsins". Meistari hennar var samkvæmt honum franska skáldið Rabelais, sem uppi var á fyrra helmingi 16. aldar og sem hann taldi mest vanræktan af öllum stórum höfundum bókmenntasögunnar. Gróteskt raunsæi hans einkenndist af stór- kostlegum ýkjum og ruddaskap og áherslu á efnislegar þarfir og nautnir. Rætur þess voru í þessari ærslafengnu „frelsun hlátursins og líkamans sem var sláandi andstæða þeirra hafta og takmarkana sem fylgdu föstunni,“" hláturinn tjáði heila heimssýn. Á næstu árum verður þessi menning að láta undan síga fyrir alvöru yfirvaldsins, skynsemishyggju og klassísisma, þótt enn sé smáneisti í glóðum karnívalsins í evrópskri menningu og andi þess móti suður-amerískar bókmenntir. Greining Bachtins er nefnd hér vegna þess hve hann er meðvitaður um breytingar á hlutverki og viðtöku bókmennta í sögunnar rás, rekur hvenær ýkjustíll hins gróteska raunsæis hættir að teljast til „alvörubókmennta“ og ærsl hans þoka fyrir nýjum hljóm. Þeir Bertolt Brecht og Walter Benjamin 155
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.