Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.04.1983, Page 60

Tímarit Máls og menningar - 01.04.1983, Page 60
Tímarit Máls og menningar manna. Nú á dögum birtist það m.a. í svokölluðu „aðhaldi jafningja“ (peer review9)) en með því er átt við að störf og niðurstöður vísindamannsins eru háð stöðugri gagnrýni og aðhaldi þeirra sem starfa á sama sviði um gervallan heim ef því er að skipta. Eg hef hins vegar lúmskan grun um að margir geri sér ekki fulla grein fyrir því hvað þetta atriði merkir ef því er haldið einarðlega til streitu eins og ég hneigist til sjálfur. Ég hef þá í huga ýmsa starfsemi sem kann að líkjast vísindum að öllu öðru leyti en því að hún fer fram meb leynd, til dæmis rannsóknir á vegum hervelda eða stórfyrirtækja nútímans. Slík starfsemi er þá í rauninni ekki vísindi og er eins gott að menn horfist í augu við það. Jákvœð gagnrýni í bókum er oft og tíðum sagt þannig frá hugmyndum Míletos-manna og annarra spekinga fyrir daga Sókratesar, að þær kunna að virðast frumstæð- ar, barnalegar og samhengislausar, eins og enginn þessara manna hafi vitað af öðrum. Ef grannt er lesið má hins vegar sjá í þessum hugmyndum ákveðna framvindu í átt til þess sem við teljum réttast nú á dögum. Þetta á t.d. við um heimsmynd þeirra, hugmyndir um lögun jarðar og eðli, um gang himintungla, um myrkva á tungli og sól og jafnvel um fyrirbæri eins og árleg flóð Nílar sem höfðu áður verið mönnum mikil ráðgáta: I öllum þessum efnum þróuðust hugmyndir Míletos-manna frá einföldum ímynd- um steinaldarmannsins, til að mynda um flata jörð, drjúgan spöl í átt til okkar hugmynda til dæmis um hnattlögun jarðar. Þótt þessi þróun hafi verið bæði hlykkjótt og skrykkjótt er ljóst af henni að hver fræðimaður um sig hefur þekkt flestar marktækar hugmyndir fyrir- rennara sinna og gagnrýnt þær á jákvæðan hátt með því að setja aðrar betri í staðinn. Þessi aðferð jákvœðrar gagnrýni er einmitt snar þáttur í aðferðum og hugmyndafræði vísinda á síðari tímum. Þannig ber vísindamanni ævin- lega að taka viðeigandi tillit til fyrri rannsókna á sínu sviði og hafa miskunnarlaust það sem sannara reynist, þó þannig að nýjar hugmyndir og kenningar gangi í gegnum þann hreinsunareld sem efni standa til hverju sinni. Það þykir yfirleitt ekki góð latína í vísindum að hamra á svokallaðri „neikvæðri gagnrýni", þ.e. gagnrýni sem rífur niður byggingar sem hafa reynst nýtilegar, án þess að neitt annað sé boðið fram í staðinn. Skynsemistrúin Margir höfundar benda á það einkenni Míletos-manna, til að mynda í samanburði við fyrirrennara þeirra í Egyptalandi og Mesópótamíu, að þeir 178
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.