Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.04.1983, Síða 61

Tímarit Máls og menningar - 01.04.1983, Síða 61
Hugmyndafrœdi vísindanna hafi hafnað öllum tilvísunum til yfirskilvitlegra afla, svo sem guða, þegar þeir voru að leita skýringa á margvíslegum fyrirbærum náttúrunnar. Þetta atriði birtist okkur nú á dögum í tengslum vísinda við skynjun og skynsemi. Hafa þess konar starfshættir trúlega borið mestan ávöxt í eðlisfræði. Þótt mér sé þannig málið skylt vil ég eindregið vara við því að menn leggi of mikla áherslu á þennan þátt, á kostnað annarra, í öðrum vísindagreinum sem eru e.t.v. allt öðru vísi á vegi staddar á þróunarbrautinni. Skynsemistrú- in getur farið út í öfgar með oftrú á stærðfræði og beitingu hennar, t.d. í félagsvísindum þar sem menn eiga kannski eftir að læra það sem við höfum lært af biturri reynslu í raunvísindunum, að stærðfræðin er aðeins hjálpar- tæki sem okkur er frjálst en ekki skylt að nota og menn hafa oft komist að mikilsverðum vísindalegum niðurstöðum án þess að beita neinni verulegri stærðfræði.10’ Segja má að Míletos-menn hafi með skynsemistrú sinni lagt fyrstu drögin að því að vísindi og trúarbrögð skildu að skiptum, en þeim skilnaði er kannski enn ekki að fullu lokið þótt 2500 ár beri í milli. Eftir að kristin kirkja kom til sögunnar var sambúð hennar við vísindin lengst af allbrösótt þó að uppstytta kæmi í væringarnar á síðmiðöldum. En þeim mun harðari varð orrustan sem skall á á 16. öld þegar svokölluð bylting Kópernikusar hófst, en henni lauk raunar ekki fyrr en á 18. öld. Ofsóknir kirkjunnar á hendur Brúnós og Galíleós á þessum tíma hafa haft úrslitaáhrif á sambúð vísinda og kirkju þótt enn væri hnykkt betur á með andstöðu kirkjunnar manna við þróunarkenningu Darwins. Nú á dögum eru flestir vísindamenn þeirrar skoðunar að trúarbrögð séu a.m.k. vísindunum algerlega óviðkom- andi hvað sem líður hlutverki þeirra að öðru leyti. Þannig telja þeir í reynd að fyrrnefndum skilnaði þessara tveggja hugmyndaheima sé algerlega lokið. I framhaldi af þessu hafa ýmsir viljað draga landamæri vísindanna sem allra skýrast gagnvart öðrum hugmyndum manna. Ef slíkt tækist gætum við hvenær sem er skilið sauðina frá höfrunum í hugmyndum manna eða hug- myndakerfum og kveðið afdráttarlaust á um hvað teljist til vísinda og hvað ekki. Mundi þá einu gilda þótt einhverjir fylgismenn einhverra hugmynda vilji endilega kalla þær vísindi. Þegar fylgst er t.d. með Velvakanda Morgun- blaðsins er vissulega ekki fyrir það að synja að það gæti verið býsna þægilegt að eiga í handraðanum þvílíka aðferð til að afmarka vísindin. Þeir höfundar sem hafa gengið harðast fram í afmörkuninni, eins og fyrr- nefndur Karl Popper, hafa einkum beint spjótum sínum að dæmum eins og stjörnuspeki nútímans, sálgreiningu Freuds og marxismanum. Hafa þeir reynt að setja fram ákveðnar reglur sem skeri úr um það að ekkert þessara hugmyndakerfa teljist til vísinda. Af þessari áráttu hafa sprottið miklar deilur, ekki síst um stöðu sálgreiningarinnar og annarra sálarfræða og 179
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.