Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1983, Side 35

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1983, Side 35
É& var í miklum vanda staddur arsjóði); til dæmis má nefna fyrstu yfirheyrslu Jósefs K., eða fyrstu heimsókn hans til lögfræðingsins. Einnig má benda á atburðina við sjúkrabeðinn í sögunni „Sveitalæknir“. Annars konar og róttækari framandleika er að finna í sögum eins og „Hamskiptunum" (kom út á íslensku hjá Menningarsjóði 1960), sem hefst með því að farandsalinn Gregor Samsa vaknar morgun einn og hefur breyst í stórvaxið skordýr. Og því verður ekki hnikað, því eins og Walter Benjamin segir í ritgerð um Kafka, þá rennur það upp fyrir lesendum að dýrasögur Kafka „fjalla alls ekki um menn.“2 Samsa verður aldrei annað en skordýr í sögu þessari sem hefur svo „raunsæislegt“ yfirbragð; við fáum aldrei að sjá hann fyrir okkur í mannsmynd. Svipað gildir um apann í „Skýrslu handa akademíu". I leikhúsi Brechts er áhorfendum ætlað að „lesa“ úr fjarlægð hin ýmsu sviðstilvik, sem Brecht kallaði „Gesten" og geta falist í hreyfingu, bendingu, lúðraþyt, stökum setningum, jafnvel augnaráði, raunar í hverju því smáatriði sem gerist á sviðinu. Hjá Kafka gætir sömu vandvirkni í skipulagningu einstakra tilvika og smáatriða; látbragð persóna er ljóslifandi og þrungið merkingu fyrir augum okkar. En í merkingunni skiljast leiðir með þessum höfundum. Brecht ætlast til þess að merking hans komist heil til skila; steyttur hnefi á að geta verið áhorfandanum ljóst tákn um hatramma baráttu verkalýðs. Hins vegar virðist oft vonlaust að ráða í tákn Kafka. I Réttarhöldunum beinist athyglin oft að skeggi manna og hvernig þeir grípa í það, en hvers vegna? Hvað merkir hinn sérkennilegi fæðingargalli Lení sem K. hrífst svo af? Hvað merkir það, svo tekið sé áberandi dæmi úr sögu hér að framan, er fjölskyldan og öldungarnir berhátta sveitalækninn á meðan skólakór- inn syngur fyrir utan? Hvað á furðuhluturinn Odradek í „Ahyggjum húsbóndans“ að tákna? Viðtökur Þar með hefur okkur borið að túlkunarvanda þeim sem hjúpar kjarnann í verkum Kafka. Ymsir gagnrýnendur sjá verk þessi sem klasa af táknum og jafnvel sem dæmisögur, en Kafka var mjög hrifinn af því frásagnar- formi. Það óþægilega við dæmisögur Kafka er, eins og Theodor Adorno bendir á, að „lyklinum hefur verið stolið."3 Við vitum ekki hvernig ráða má í þetta „dulmál", lesa úr því merkingu. Sá sem ætlar sér að túlka eða skrifa um Kafka er því í miklum vanda staddur. Gott ef hann verður 265
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.