Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1983, Page 38

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1983, Page 38
Tímarit Máls og menningar heilsteyptan og sameiginlegan veruleika manna, sem sé rökréttur og skiljanlegur (sjá Barthes, 31—33). Gegn þessu viðhorfi snýst módernisminn. I kjölfar vaxandi þjóðfé- lagsfirringar skynja ýmsir höfundar firringu tungumálsins. Fólk er ekki í lifandi tengslum við málið, heldur notar það hugsunarlítið sem hvert annað tæki (þessar aðstæður hafa verið gjörnýttar af auglýsingaiðnaði og stjórnmálaumræðu okkar tíma). Slíkt hefur ýmsar hættur í för með sér. Heimsmynd og hugmyndafræði er fyrst og fremst miðlað um tungumál- ið og það er því langt frá því að vera „saklaust" verkfæri. Hin hefðbundna notkun málsins stuðlar að þeirri blekkingu að þjóðfélagið allt eigi sér sameiginlega heimsmynd og að hægt sé að öðlast yfirsýn eða heildarmynd af hinum félagslega veruleika. I augum flestra módernista er raunveruleikinn torræður og tvístraður, hin eina sanna mynd af honum birtist einstæðingsbundinni vitund og er túlkuð á einkalegu og stundum torræðu máli. Jafnframt leggja módernistar áherslu á hið skapandi afl tungumálsins umfram endurspeglunarhæfni þess. Lesandi verður að staldra við í heimi tungumálsins í stað þess að stökkva strax „yfir um“ eins og Kafka segir á sinn tvíræða hátt í sögu sem hér fer á eftir, þ. e. yfir á svið þekkjanlegs raunveruleika (að sönnu hafa sum skáld jafnvel skrifað texta sem eiga að vera án allrar vísunar á raunveru- leikann, en slíkt er þó ekki dæmigert fyrir módernismann í heild). Módernisminn freistar þannig vísvitað að flækja hið hefðbundna skír- skotunarhlutverk bókmenntanna í því skyni að bregða nýrri birtu á tungumálið og þá tilveru sem það túlkar. Þetta gerist auðvitað á margvís- legan hátt, en þeirri fjölbreytni verða ekki gerð skil hér (slíka meðferð málsins má að sjálfsögðu einnig finna í eldri bókmenntum frá öllum tímum, en aldrei svo að hún verði eitt af megineinkennum heillar stefnu eða straums). A þessum grunni verður að koma til móts við verk Kafka. Þau eru eitt besta dæmi þess hvernig höfundur skapar söguveröld er við þekkjum ekki sem spegilmynd af raunheimi okkar (en þekkjum kannski samt, þótt á annan hátt sé). Spurningin er svo auðvitað, eins og fyrr var vikið að, hvernig beri að lesa og túlka þennan sérkennilega texta. Ymsir hafa orðið til að taka undir þau orð Theodors Adornos að „fyrsta reglan“ sé að „taka allt bókstaflega, þekja ekkert með hugtökum sem koma að ofan“12 Víst felast áhrifin sem lesandi Kafka verður fyrir að stórum hluta í sögunum eins og þær koma fyrir augu. En fæstir munu geta látið þar við sitja; þörfin á að vinna merkingu úr textanum er of mikil. Adorno 268
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.