Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1988, Síða 17

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1988, Síða 17
Gegn straumi aldar Schleswig-Holstein og þar að auki Suður-Jótland, sem Danir endurheimtu ekki fyrr en 1918. Þegar Rodding var komin undir prússneska stjórn fluttu forráðamenn skólans hann rétt norður fyrir hin nýju landamæri og endur- reistu hann í Askov. Allar götur síðan, árin sem Gunnar var í Askov og fram yfir fyrri heims- styrjöld, var skólinn sakir sögu sinnar hreiður brennandi þjóðerniskenndar gagnvart yfirgangi grannans í suðri. Þarna komst Gunnar strax á mótunar- skeiði í nána snertingu við vandann í nábýli Dana og Þjóðverja. Það var þó ekki dansk-þýski sambúðarvandinn einn sem Gunnar kynnt- ist í Askov. Þegar hér var komið sögu mátti lýðháskólahreyfingin kallast samnorræn og gildur þáttur í hugsjónum hennar var það sem við köllum skandínav- isma, hugmyndin um menningarlega einingu Norðurlanda. Askovskólinn var eftirsóttur, og auk Dana voru þar við nám Islendingar, Svíar og Norðmenn. Eins og lýst er í sögu Ugga Greipssonar, urðu einnig Norðmenn og Svíar meðal nánustu kunningja Gunnars í Askov. Þarna komst hann í reynd í kynni við hina norrænu samkennd skandínavism- ans. Þetta tvennt, skandínavisminn og afstaðan til Þýskalands, urðu þeir þættir sem hvað ábærilegastir og afdrifaríkastir urðu í opinberum hug- myndafræðilegum afskiptum Gunnars Gunnarssonar á þriðja og fjórða áratugnum. Vorið 1910 fluttist Gunnar til Kaupmannahafnar og næstu tvö árin lifði hann þar við sult og seyru, en 1912 kom út fyrsta bindið af Sögu Borgar- xttarinnar, Ormarr Orlygsson, og á næstu tveimur árum framhaldið Danska frúin á Hofi, Gestur eineygði og Orninn ungi. Með þessu verki vann Gunnar þann höfundarsigur sem sköpum skipti. Fyrstu verk höfunda, sem reynast standa undir nafni, hafa löngum verið heillandi viðfangsefni fyrir samanburðarbókmenntafræðinga. Einatt eru þessi verk eins og Janusarhöfuð sem horfir í tvær áttir senn: Vísa aftur til lærimeistara og fyrirmynda og horfa fram til síðari verka. I Sögu Borgarættarinnar má þannig eygja ýmis þau viðfangsefni og vandamál er Gunnar glímdi síðar við á löngum höfundarferli. Þetta birtist í einstökum minnum og ekki síst í ákveðnum manngerðum. Hér er hinn jarðnáni, trausti bændahöfðingi, fjölskyldufaðir og kon- ungur í ríki sínu, Orlygur á Borg. Hér er hin örlögborna hetja Ormarr sonur hans, eins konar íslenskur Tonio Kröger sem togast milli ólíkra 407
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.