Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1988, Page 75

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1988, Page 75
Aukin menningarbyrdi hins mikla raunsæis, þar sem allt varð að játa og opinbera, skilgreina og túlka ofan í kjölinn, þá gleymdist samt eitt: stíllinn. Við getum reynt að gleyma Guði, eins og hugmyndafræðingar síðmód- ernismans álíta reyndar að við séum að gera. En það hefur verið reynt áður. Og samt kemur alltaf nýr Guð í staðinn. Ef Guð er ekki litli skeggjaði karl- inn í skýjunum, þá er Guð það sama og Náttúran, eða Skynsemin, eða Vís- indin. Frumspeki mundi vera það orð sem nær yfir þessar stærðir, og hún lætur ekki útrýma sér, heldur verðum við að sætta okkur við tilvist hennar. Ef eitthvað er að hverfa, gæti maður ætlað að eitthvað væri að byrja. Frakki nokkur hefur sagt að 20. öldin hafi endað árið 1960. Ef maður þorir ekki að hugsa þá hugsun til enda getur maður auðvitað látið 21. öldina hefj- ast árið 1960, en það hefur hann trúlega ekki átt við. Hann hefur viljað tjá þá tilfinningu, sem flestar kynslóðir upplifa, að okkur finnst oft eins og við lifum í tómarúmi á milli gamals og nýs, þess sem var og þess sem kemur. Og einmitt bókmenntirnar geta betur en nokkuð annað tjáð þessa upplifun okkar á tímanum, og hjálpað okkur til að skilja betur. Bókmenntaumrœðan Vita danskir bókmenntafræðingar í dag meira um bókmenntir en fyrir 10 eða 20 árum síðan? Þrátt fyrir að spurningin sé órökrétt getur svarið mæta- vel verið áhugavert, og í þessu tilfelli álít ég að svarið geti hjálpað okkur til að skilja muninn á orði og athöfn. Reyndar vita þeir meira nú en áður, en vandamálið er, eins og ég sé það, að hætt er við að sú vitneskja verði aldrei notuð. Það skortir bæði tíma og næði til að nýjar kenningar geti fengið praktíska þýðingu, geti til dæmis komist inn í námskrár háskóla eða menntaskóla. Samkeppnin og nýja frumspekin, nýi Guðinn, Markaðurinn keyrir alla áfram. Sem dæmi um hversu fáránlegar afleiðingar þetta ástand getur haft má nefna doktorsritgerð í bókmenntafræði, sem lögð var fram í Arósum fyrir nokkrum árum, en dómnefndin vísaði frá vegna þess, að höf- undur beitti öðrum aðferðum en dómnefndarmenn. Ritgerðin fjallar um ýmsa þá þætti, sem fengu ekki hljómgrunn í danskri bókmenntaumræðu fimmta og sjöunda áratugarins, og hafa ekki enn komist inn í umræðuna þrátt fyrir tilraunir í þá átt. Við verðum nefnilega að fylgjast með því nýj- asta. Bókmenntaverk er annarsvegar afmörkuð heild, lokaður heimur með eigin lögmál og eigin framvindu, og allt sem gerist í verkinu á að öðlast merkingu innan þessarar heildar, óháð því sem gerist utan hennar. Hins- vegar gildir þetta einungis þangað til lesandinn kemur til sögunnar, því að hann raskar að sjálfsögðu stöðugleika sögunnar með draumum sínum og væntingum, og hann er þátttakandi í því samfélagi, sem verkið er túlkun á. 465
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.