Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1988, Page 82

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1988, Page 82
Tímarit Máls og menningar hálfu meira á sig til að fá hálft eins mikla viðurkenningu á störfum sínum. Við erum annars flokks þegnar. I mörgum löndum Suður-Ameríku erum við ennþá fatlaðar samkvæmt lögum. Gift kona er verr sett gagnvart lögum en barn eða geðsjúklingur, þó hefur hún sömu skyldur og fyrsta flokks þegn, það er að segja karlmaður. Oft fær hún lægri laun fyrir sömu vinnu, en fyrir sama glæp fær hún þyngri hegningu. Til dæmis má setja konur í fangelsi fyrir framhjáhald, en ótrúr eiginmaður verður að vera sekur um tvíkvæni eða „svívirðilegt frillulíferni“ til að dómarinn slái á puttana á hon- um. Eg fæddist á tímum seinni heimsstyrjaldar og ólst upp í vanþróuðu, kaþ- ólsku, afturhaldssömu ríki þar sem stéttskipting var gersamlega stirðnuð og óhagganleg, við feðraveldi og karlaveldi. Þessu myndu Chilebúar mót- mæla; þeir segja að í Chile sé mæðraveldi og þar sé minna um karlveldis- hugsunarhátt en í öðrum löndum álfunnar, Chile sé eins konar England Suður-Ameríku. Það þarf ekki annað en skoða löggjöfina til að sjá hvað þetta er mikil vitleysa. Og á síðari árum hefur herforingjastjórnin heldur alið á karlmennskunni. Getið þið hugsað ykkur betra dæmi um karlveldis- hugsunarhátt en að láta hermenn njóta friðhelgi? Dagana eftir valdatöku hersins 1973 fóru hermenn um með skæri og klipptu síðbuxur utan af kon- um á götunni. Herforingjastjórnin gaf loks þá yfirlýsingu að hún hefði ekki gefið skipun um þetta, en auðvitað sagðist hún vilja heldur að konur gengju í pilsum eins og sæmilegt væri. Um þetta leyti var mér falið að taka sjónvarpsviðtal við hægri sinnaðan lögfræðing sem var að gera uppkast að nýrri stjórnarskrá fyrir Pinochet. Hann er ókvæntur, ákafur kaþólikki, æstur andstæðingur frjálslyndis í stjórnmálum, kvenhatari og sagður hreinn sveinn - eða að minnsta kosti hrikalega hreinlífur. Alger elska, sem sagt. Eg spurði hann hvort nýja stjórnarskráin bætti stöðu kvenna, hvort þar yrðu ákvæði um hjónaskiln- aði, barnaumönnun, fóstureyðingar og svo framvegis. Hann reis úr sæti sínu, hvítur af heift, og sagði: „Svo lengi sem ég lifi verða aldrei samþykkt lög hér á landi sem leyfa hjónaskilnaði og fóstureyðingar." „En þér getið ekki látið sem þér sjáið ekki hve mörg hjónabönd fara í vaskinn og hve margar konur og börn eru skilin eftir án verndar laganna. Þér getið ekki heldur lokað augunum fyrir því að tvær af hverjum þrem konum á kvennadeildum spítalanna koma þangað vegna þess að þær hafa reynt að eyða fóstrum með herðatrjám eða einhverjum öðrum álíka harka- legum ráðum,“ tautaði ég hálfskekin. „Hlustið þér nú á, unga kona,“ æpti maðurinn ævareiður. „Við ætlum ekki að setja lög um hjónaskilnaði og fóstureyðingar, ekki fremur en við 472
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.