Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1991, Blaðsíða 71

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1991, Blaðsíða 71
Og skoðum svo hvemig Einar Már Guð- mundsson lýsir þögninni: Þögnin. Hún erblindur maður með staf. Hún tek- ur trommusóló við eldhúsvaskinn, sturtar niður úr klósetti og gerir regndropana sem slást utan í rúðumar að ræðumönnum sem með ræðustóla eins og kryppur út úr bök- unum hækka sífellt róminn.15 Einmaninn veit mætavel hvemig þögnin magnar öll hljóð og Einar Már varpar ljósi á þá vitneskju með myndmáli sínu. Ég hygg að þessi dæmi styrki þá tilgátu ýmissa gáfu- manna að skáldskapur veiti fremur innsýn en fróðleik, auðgi skilning vom en upp- fræði ekki. Skáldleg innsýn getur verið fólgin í því að skoða velþekktar staðreyndir með nýjum hætti, varpa nýju ljósi á þær.16 Til að mynda veltir aðalpersóna Guðlaugs Arasonar í skáldsögunni Sóla, Sóla vöng- um yfir þeirri dæmalausu staðreynd að hann varð til vegna þess að ein tiltekin sæðisfmma var snarari í snúningum en aðr- ar, komst á undan í eggið. Slíkar pælingar eru upplýsandi, hugvíkkandi, auka skilning okkar á því að tilvera okkar er tilviljunum háð. En þær eiga ekkert erindi í heimi vís- inda og tæpast í „alvöru“ heimspeki; þær sóma sér best í skáldskap. Guðlaugur reynir að fá lesandann til að láta sér finnast vissar staðreyndir furðu- legar: „Er það ekki dæmalaus andskoti að ég væri ekki ég ef ákveðin sæðisfruma hefði ekki synt svona hratt?“ Önnur skáld vilja fá okkur til að skynja fyrirbæri af ýmsum toga sem fögur, skondin eða skáld- leg. Jóhann Hjálmarsson nefnir eina af ljóðabókum sínum Lífið er skáldlegt og vill með henni miðla þeirri sýn að hversdags- legir hlutir geti verið skáldlegir. Og úr því ég er á annað borð byrjaður að tala um ljóðlist er ekki úr vegi að líta á ljóð eftir bögubósa nokkum sem ekki vill láta nafns síns getið: Borgarvargar bera tennur, glefsa, ýlfra, glampar í rauðar glyrnur er þeir renna neonlýsta slóð. Verða veiddir í snörur úr ljósi. Túlka má þetta kvæði þannig að höfundur sé að lýsa bílum sem keyra á fullu á rúnt- inum. Með því að líkja þeim við úlfa reynir hann að kasta ljósi á akstursmáta rúntbíl- anna, auðga skilning okkar á þessu fyrir- bæri. Innsýn, skynjun, þekking Ýmsir andans menn myndu sjálfsagt halda því fram að skáldleg innsýn beri ekki nafn með réttu þvíhún sé aðeins „þekking" áþví hverfula, skuggum sem lyftast „líkt eins og mynd á þili“.17 Eldurinn er raunverulegur, töfrar hans ekki, gætu þessir menn sagt. En það hugarástand að vera heillaður af eldi er engu minna raunverulegt fyrir þeim heill- aða en upplifunin af rauðum lit eldsins og snarki hans. Og svo má ekki gleyma því að hughyggjumenn telja veröldina vef sem of- inn er úr þeli voru. Alla vega telja margir spakir menn að hugurinn móti skynjunina, hún er tæpast forsendulaus. Fræg er myndin af héra-öndinni, menn sjá sömu teikning- una ýmist sem héra eða önd. Dæmi þetta og önnur svipuð benda til þess að væntingar vorar og for-dómar liti skynjunina, eins og TMM 1991:2 69
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.