Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1992, Qupperneq 54

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1992, Qupperneq 54
— Til útlanda? Af hverju? — Ég segi þér það seinna. En ég verð að fara. Ég verð. Röddin var lág og svolítið hás. — En hvenær? Hvert? — í fyrramálið. Hún opnaði augun og deplaði þeim, greip svo eftir sígarettupakka í vasanum á treyjunni sinni og kveikti sér í á höfði engilsins. Það var skrýtinn einbeitnisvipur á andlitinu, næstum skelfing- arsvipur. — Vélin fer sjö, sagði hún. Hún blés frá sér stóru reykskýi og eitt andartak sýndist honum mynd hennar skjálfa á bak við bláa reykjar- móðuna eins og hún væri andi, sem hefði stigið upp úr töfraglasi. — Eitthvað að? vogaði hann sér að spyrja. — Neei. Og þó — kannske. Jú, jú, það er allt í flækju. En það verður í lagi þegar ég er komin út. Það er bara eitt.. . — Eitt hvað? — Ég er blönk, á ekkert nema farmiðann. Ég ætlaði að vita hvort þú vildir lána mér pening? Hún drap í hálfreyktri sígarettunni á skrautmál- aða diskinum hans á borðinu og það ískraði í glerungnum meðan hún hamaðist á glóðarkornunum, sem höfðu þotið út um allt eins og eldhnettir frá sprunginni sól. — En það er nótt. Ég get ekki náð í neina peninga. Ég hef svo lítið héma. — Ég þarf ekki mikið, sko. Bara til þess að skrimta í tvo daga. Þá fer ég til Ítalíu og hitti vin minn. Hann lofar að það bíði miði hjá Alitalia í London á föstudag, og þá verð ég með allt á hreinu. Þá get ég borgað þér aftur. Sko, ég sver ... — En ég veit ekki hvað ég á ... — Það verður alveg nóg, engin vandræði. Hún brosti. — Ég vissi að þú mundir gera það. Þessi skrýtni einbeitnisvipur var horfinn og augun í henni sögðu honum að hún vissi að hún hafði unnið sigur. — Ég skrifa þér svo og segi þér frá öllu. Er ég ekki voðaleg að biðja þig um þetta? — Ha, nei, nei, ansaði hann og heyrði þó varla hvað hún sagði. Hann var satt að segja enn annars hugar út af þessari óvæntu heimsókn og nú þessu erindi hennar. Jú, hann átti peninga — tuttugu og tvö þúsund og fjörutíu krónur, sem lágu vendilega taldar í umslagi uppi á homhillunni, þar sem engillinn hafði verið. Reyndar hafði hann staðið ofan á umslag- 52 TMM 1992:2 *
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.