Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1992, Síða 83

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1992, Síða 83
brott í fylgd fugla. Lítið bam liggur í gröf sinni og fylgist með mannaferðum ofan jarðar. Ungur maður lætur græða á sig hreindýrshorn og nýtur félagsskapar besta vinar síns, drykkfellds hrúts. Munaðarlaus móri fhugar að ryksuga fyrir heimilisfólk sem leiðist verkið. Þetta eru aðeins nokkrar persónur verks sem býr að hlýju og innileika, en þeir eigin- leikar eru lítt áberandi í fyrri prósaverkum Gyrðis. Þar hætti höfundi til að aga texta sinn svo mjög, að öðru hvoru hljóp í hann kuldi. Frásögnin vaknaði um leið ekki til þess stemmningsríka en þó hófstillta lífs sem henni virtist ætlað. í hinu nýja verki verður hvergi vart til- finningalegrar fjarlægðar höfundar frá söguefni sínu. Verkið er ríkt af tilfinningu, sem er mjúklega sveigð til þjónustu við fagurfræði textans. Ur þessu samspili er unnið af gáfu sem ég fæ ekki skilgreint öðruvísi en sem ofurnæmi viðkomandi listamanns. Texti hans býr víða að fíngerðri fágun sem sjaldgæft er að rekast á í skáldskap svo ungs manns: Tvo hesta kvöldsvæfa dreymir við vegarbrún nætursvarta, dreymir grænar morgunengjar í Wales, og svani að fljúga að blýgráu fjalli. (29) Þessi tilvitnun er hluti af lengri texta. En hún gæti ein sér staðið á prenti sem skólabókardæmi um það hvemig nákvæmt orðaval, orðskipan og hrynjandi skapa fullkomna myndræna og lýríska fegurð. Um leið er þetta eitt megineinkenni á verki Gyrðis. Það er slíkur skáldskapur sem minnir kröftuglega á þann rétt listarinnar að vera til listarinnar vegna. En þegar Gyrðir sendi frá sér þetta besta prósaverk sitt var eins og flestum stæði á sama. Það var líkt og allt hefði þegar verið sagt og engin ósögð orð eftir til að lofa það eina skáldverk þessarar vertíðar sem var án smíðagalla. *** Þegar þú þarft að koma draumi í kring farðu þá ekki að sofa heldur út að labba og hoppaðu með hundrað skrefa millibili uppí loft. Kristín Omarsdóttir: Einu sinni sögur Það má finna sitthvað líkt með ævintýrinu og sögum Gyrðis Elíassonar í Heykvísl og gúmmískóm og þessi líkindi eru einnig áberandi í örsögum Kristínar Ómarsdóttur, Einu sinni sögum, sem margar hverjar hefj- ast á orðunum „Einu sinni var . . töfra- orðunum sem böm setja gjaman í sögur sínar. „Einu sinni var maður sem fór út að labba og svo kom bíll og keyrði á hann og hann dó og svo er sagan búin,“ segir bamið og hinum fullorðnu hnykkir við hvemig því harmræna er lýst úr tilfinningalegri fjar- lægð eins og því sjálfsagða. Þetta er ekki ósvipað aðferð Kristínar. Hún einbeitir sér að vísu ekki að hinu harm- ræna heldur því óvænta og ævintýralega og lýsir því á hversdagsmáli eins og á ferðinni séu sjálfsagðir atburðir: Einu sinni var stelpa. Hún var með ást- arloga á höfðinu. Hann leit út eins og kertaljós en bara fáir gátu séð hann. Hún ætlaði að giftast þeim sem gæti slökkt logann. Svo hitti hún mjög hávaxinn mann sem beygði sig yfir hausinn á henni og blés eins og hann ætti eins árs afmæli... (147). TMM 1992:2 81
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.