Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.01.2012, Page 99

Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.01.2012, Page 99
99 manna sem lætur tilgangsorsakir í allri náttúrunni falla fullkomlega að nýjustu uppgötvunum náttúruvísindanna.23 Hugmyndasagnfræðingar sem þráast við að viðurkenna þann virðingarsess sem markhyggja skipaði þrátt fyrir allt á sautjándu öld gætu nefnt tvær ástæður fyrir því hvers vegna við þurfum ekki að gera of mikið úr þessum þætti í verkum þessara vísinda- manna. Annars vegar gætu þeir haldið því fram að sú endurskilgreining sem tilgangsorsakir gengu í gegnum í hugsun vísindamannanna geri það að verkum að rangt sé að tala um markhyggju í þessu sambandi. Hins vegar gætu þeir einfaldlega gert lítið úr vísindalegu gildi ofangreindra hugmynda og sagt þær eiga fremur heima innan guðfræði en vísindasögu. Til þess að athuga hversu réttmætar slíkar athugasemdir eru í raun og veru þarf að athuga nánar hvers eðlis markhyggja er og hvaða spurningum hún svarar. Markhyggja byggir á rannsókn á tilgangi fyrirbæra. Þessi tilgangur getur brugðið sér í margs konar búning og við tölum oft jöfnum höndum um markmið eða hlutverk fyrirbæra frekar en tilgang þeirra. Rannsóknin á sér auðvitað tæknilegra hugtakasafn og er hin aristótelíska tilgangsorsök (lat. causa finalis) grundvallarhugtak hennar. Hugtakið getur verið villandi við fyrstu kynni. Tilgangsorsök er ekki orsök sem kemur á eftir hlut eða atviki. Tímaramminn er ekki það sem skiptir höfuðmáli, framtíðin orsakar ekki nútíðina. Tilgangsorsök er útskýring, hún er „vegna þess“-hluti setn- ingar sem á að svara „hvers vegna spurningu“.24 Á íslensku má því sem best nefna hana tilgangsskýringu, en þá verður að hafa í huga að þau náttúrulegu ferli sem passa við skýringuna eru raunveruleg. Skortur á frumspekilegum áhuga hefur gert það að verkum að rökgreiningarheimspeki hefur sára- lítið sinnt markhyggju þrátt fyrir að efniviðurinn kalli á nákvæma grein- 23 Frægustu verkin eru án vafa bækur Williams Derham Physico-Theology og Astro- Theology frá 1714 og 1715. Margar fleiri mætti nefna. Raunar má segja að um nokkuð stanslausa útgáfu á Bretlandseyjum (og raunar í flestum Evrópulöndum) hafi verið að ræða fram til hins þekkta verks Williams Paley Natural Theology frá árinu 1802. Það verk er oft nefnt sem einhvers konar dauðateygjur hugmyndafræði sem komin var að fótum fram. 24 Aristóteles, Eðlisfræðin, Bók II, kafli 8. Sjá einnig ítarlega grein Allans Gotthelf, „Aristotle’s Conception of Final Causality“, The Review of Metaphysics 2/1976, bls. 226–254. Nýlegt rit sem útskýrir og ver afstöðu Aristótelesar á ákaflega sannfær- andi hátt er bók Montes Johnson, Aristotle on Teleology, Oxford: Clarendon Press, 2005. Verkið er meðal annars öflug greining á margs konar leiðum til þess að túlka tilgangsorsakir í heimspeki Aristótelesar, til þess að setja markhyggju og heimsfræði í sem víðast samhengi. SKYNSEMIN Í NÁTTÚRUNNI – NÁTTÚRULEG SKYNSEMI
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186

x

Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar
https://timarit.is/publication/1098

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.