Skírnir - 01.04.1994, Page 46
40
HERMANN PÁLSSON
SKÍRNIR
trúað á Óðin, en sá átrúnaður er blandinn efa hins hugsanda
skálds. Um Óðinsdýrkun þeirra Egils, föður hans og afa verður
spjallað í þeim köflum hér á eftir sem fjalla um hamremmi, ber-
serksgang, rúnir, fjölkynngi; slíkar iðjur benda mjög til Óðins. Þó
skal geta í bili ummæla Kveld-Úlfs að Óðinn kaus Þórólf of
snemma (60), sem minna rækilega á orð Aslaugar í Ragnars sona
þœtti þegar hún fréttir lát Sigurðar orms-í-auga sonar síns: „Of
snemma lét Óðinn / álf valmeyjar deyja.“ (Fornaldar sögur 1950,
1:302). Egill segir hins vegar að Óðinn hóf son hans upp í Goð-
heim.
Þegar ókunnur höfundur Eglu skráði frásagnir af viðureign
þeirra Egils og Þorgeirssona þyrnifótar á Aski í Fenhring má
sennilegt þykja að hugur hans hafi hvarflað að einhverjum stór-
brotnasta garpi í fornsögunum sem endur fyrir löngu var heima-
maður þar á bæ og minnst er rækilega í Gautreks sögu. Starkaður
Stórvirksson var þrevetur þegar Hrosshárs-Grani bóndi á Aski í
Fenhring tók hann herfangi og fóstraði síðan um níu vetra bil.
Hrosshárs-Grani reynist einmitt vera Óðinn sjálfur og fær Stark-
að til að svíkja Víkar fóstbróður sinn. Nú verða örlög Starkaðar
ráðin með því móti að Óðinn skapar honum góða hluti en Þór
leggur á hann hvert bölið á fætur öðru. Svo hagar til að þau gæði
sem Óðinn lætur falla Starkaði í skaut koma býsna vel heim við
Egil: langlífi, góð vopn, cerið fé, sigur og snilld að hverju vígi,
skáldskapur, metorð með göfugum mönnum. Hins vegar hrína
hvergi á Agli þeir bölstafir sem Þór lætur dynja yfir Starkað.
I víðkunnri ritgerð um átrúnað Egils Skalla-Grímssonar held-
ur Sigurður Nordal þeirri tilgátu fram að Egill hafi alist upp við
Þórsdýrkun heima á Borg en orðið síðar fyrir sinnaskiptum eftir
að hann kynntist Óðni með höfðingjum í Noregi.5 Kenningu
þessa reisir Sigurður bæði á Eglu og á kveðskap Egils sjálfs, eink-
um síðara hluta Sonatorreks. Margar athugasemdir hans í slíka átt
eru prýðilegar, en þó eru auðsæir agnúar á málafærslu. Enginn
stafur styður þá staðhæfingu hans að Egill hafi „alizt upp við ríka
Þórsdýrkun, verið snemma innrætt að tigna og treysta á þann
5 Gabriel Turville-Petre tekur í sama streng og Nordal um trúarhvörf Egils í
Myth and Religion of the North (1964, 263).