Skírnir - 01.04.1994, Page 133
SKÍRNIR „MUN KONUNGI EG ÞYKJA EKKI ORÐSNJALLUR'
127
þegar hann er veginn. í sögunni er mikið um tölur og virðast þær
skipta höfund máli.31 Þegar um hópa manna er að ræða, er algengt
að þeir fari átta, tólf, sextán eða þrjátíu saman. För Rögnvalds er
eina dæmið um þrettán manna hóp í sögunni. Þar sem þrettándi
maðurinn er konungssonur, kemur Jesús Kristur upp í hugann,
því hann fór um í fylgd tólf postula, var sonur Drottins, auk þess
sem hann siglir á Genesaretvatni með postulum sínum.32
Sú spurning vaknar hvort Rögnvaldur eigi að vera tákn fyrir
Jesúm Krist og, ef svo er, hvort tákn þetta eigi að vísa lesendum á
æðri merkingu sögunnar. Ef við gefum okkur að um Kriststákn
sé að ræða, þá verður að svara því hvað dráp Krists táknar í krist-
inni guðfræði. Kristur er Guð og maður, og því í senn faðir og
bróðir sérhvers kristins manns. Samkvæmt kristilegum söguskiln-
ingi var krossfestingin endurtekning tveggja frumglæpa mann-
kyns, uppreisnarinnar gegn Guði þegar Adam og Eva átu af
skilningstréi góðs og ills og glæpnum gegn meðbróðurnum þegar
Kain myrti Abel. Upprisa Krists frá dauðum leysti mannkynið
undan þessum tveimur glæpum.33 A þennan hátt tengjast vísanir
Egluhöfundar til kristins textaheims sömu bróðurmorðshug-
myndum og önnur textatengsl sem hér hafa verið rædd. Þessi vís-
un í kristinn textaheim er þeim mun áleitnari að hér er birtu
kristilegs siðgæðis varpað á víg Rögnvalds konungssonar og þar
af leiðandi deilur Egils og Eiríks blóðaxar. Hvers vegna? Hvað
skyldi vaka fyrir höfundi?
Nú verður aftur vikið að þeim persónum Egils sögu sem nefn-
ast Ketill og hafa viðurnefni. Þeir eru alls sex en aðeins fjórir
koma beint við sögu: Ketill höður sem fyrr var nefndur, Ketill
hængur, sem nemur land milli Þjórsár og Markarfljóts, Ketill
blundur og Ketill gufa. Allir nema Ketill höður eru landnáms-
menn á Islandi og frásagnir af landnámi þeirra marka allar þátta-
31 Einar Pálsson setur fram tilgátu um merkingu talnanna í Egils sögu í bók sinni
Egill og úlfar tveir, Reykjavík 1990. Talan þrettán er þó ekki meðal þeirra taina
sem Einar fjallar um.
32 Sjá t.d. Matt. 14:22 o.áfr. og Jóh. 6:16 o.áfr.
33 Sjá t.d. Róm. 5:12-14 og I. Kor. 15:20-23. Sjá einnig Heb. 12:24 um Abel sem
forvera Jesú Krists.