Skírnir - 01.04.1999, Page 71
SKÍRNIR ÞEGARISLENDINGAR URÐU FORFEÐUR ÞJÓÐVERJA
65
urnar höfðu blásið í brjóst lærðum sem leikum. Þar á meðal er
„Predikun“ skáldsins Richards Dehmel um andlega nærveru nor-
rænna goða:
Þýskir dátar forfeðra heiðrinum skarta;
enn eruð þið germanir í hjarta!
Skytta, þú sem vinstra auga lýkur,
sá er einn sem aldregi þig svíkur:
Óðinn sjálfur lifnar þér í brjósti
eineygði guðinn í þrumuskýjagjósti.48
Er stríðið hófst voru komin út níu bindi í Thule-ritröðinni. I
fyrstu áformaði Diederichs að halda útgáfunni áfram eins og ekk-
ert hefði í skorist. Þegar hann frétti að 2. bindi eddukvæða yrði
ekki tilbúið hjá þýðanda í tæka tíð varð hann því fyrir sárum
vonbrigðum. Eddan hafði átt að verða jólabókin 1914, hvort sem
friður yrði kominn á eða ekki.49 Brátt varð svo ljóst að framhald
Thule-útgáfunnar yrði að bíða betri tíma.
Aftur á móti stóð ekkert í vegi fyrir því að laga markaðssetn-
inguna að nýjum aðstæðum.50 Svo segir í auglýsingu um Thule-
ritröðina frá 1915:
[Sögurnar] lýsa hetjuheimi. Hinn forni germani var ávallt reiðubúinn að
fórna lífinu fyrir æðri gildi. I fylkingarbrjósti standa þrjár lífssögur: karl-
mannlegi verkmaðurinn Egill, hinn yfirvegaði Njáll, ungi ofurhuginn
Grettir - þrjár grundvallargerðir þýskrar karlmennsku.51
48 „Deutsche Soldaten, ihr seid wert aller Ahnen; / fiihlt euch nur immer als
Germanen! / Fiisilier, wenn du das linke Auge schliefit / und mit dem Visier
in die Feindesrotte schiefit, / dann lebt Odin wieder in dir auf / der eináugige
Blitzgott im Sturmwolkenhauf." Richard Dehmel: „Prádigt an das deutsche
Volk in Waffen.“ Der Heilige Krieg. Gedicbte ans dem Beginn des Kampfes.
Tat-Búcher fur Feldpost 1. Jena 1914, s. 9-10. (ÓB snaraði). Rétt er að taka
fram að í ljóðum þessum eru norrænu goðin sjaldan ákölluð en „guð“ þeim
mun oftar.
49 Heusler til Ranisch, 17. ágúst 1914. Briefe, s. 373.
50 Um útsjónarsemi Diederichs í bókaútgáfu á stríðstímum sjá Andreas Meyer:
„Der Verlagsgrúnder und seine Rolle als Kulturverleger." Versammlungsort
moderner Geister, s. 26-89, hér s. 61-64.
51 Germanisches Heldentum. Quellensammlung altgermanischer Lebenszeugnisse.
Gustav Neckel sá um útgáfuna. Jena [feb.J 1915, viðauki (án blaðsíðutals).