Skírnir - 01.04.1999, Page 77
SKÍRNIR ÞEGAR ÍSLENDINGAR URÐU FORFEÐUR ÞJÓÐVERJA
71
Diederichs í hóp stjórnarandstæðinga. Honum var mikið niðri
fyrir og þótti við hæfi að kalla forna vætti til hreinsunar í spilltum
stjórnmálaheimi:
Alfaðir, sendu hrafna þína á loft og opnaðu fjallið þar sem hinn rauðljós-
hærði fursti germana situr. A örlagastundu á Þýskaland þitt engan sem
rutt getur úr vegi þessum andlausu prútturum og málamiðlurum, engan
sem er fæddur hertogi og þorir að ganga fram fyrir skjöldu og sveifla
sverðinu. Engan sem er baráttumaður hugsjóna.65
I anda slíkrar yfirlýsingar var Thule-ritröðinni nú ætlað öllu
stærra hlutverk en í upphafi. Ásamt annarri „þjóðlegri“ útgáfu-
starfsemi skyldi hún bjarga þýskri menningu frá því að drukkna í
hringiðu nútímans. Kreppuandrúmsloft millistríðsáranna, sem
stundum jaðraði við heimsslitaótta, leyndi sér ekki í kynningar-
bæklingum forlagsins. Bjargræðisleiðin var að þrengja hinn
menningarlega sjóndeildarhring og takmarka við það sem taldist
þýskt og norrænt:
Ragnarök, „þjóðarök" ógna Norðurálfu. Ef þau eiga ekki að eyða okk-
ur, ef við sem þjóð eigum ekki að verða tortímingu að bráð, verðum við
að hyggja að okkur sjálfum. Innri rödd leiddi okkur á síðustu áratugum
til norrænna bókmennta. Við komum leitandi til Ibsens, Björnsons,
Strindbergs, en þeir jusu sjálfir úr dýpri lindum. Hér í norrænum frum-
skáldskap eru þessar uppsprettur við fætur okkar. Við þurfum aðeins að
leita þeirra sjálf. En leiðin liggur greið í gegnum ‘Thule’.66
Eins og Zernack hefur bent á, er það vart tilviljun að bæklingur-
inn kom út skömmu á eftir frægu menningarsvartsýnisriti
Oswalds Spengler um Hnignun og tortímingu Norðurálfu, þar
sem m.a. borgarvæðing nútímans er dregin til ábyrgðar.67
65 E. D.: „Die Nationalversammlung.“ Politik des Geistes, s. 175-77, hér 176.
Diederichs blandar hér saman norrænum goðaheimi og þýsku arfsögninni um
Barbarossa.
66 „Thule.“ Bæklingur Diederichsforlagsins frá 1922, tilvitnun hjá Zernack:
Geschichten aus Thule, s. 355-56.
67 Zernack: Geschichten aus Thule, s. 355-56; Oswald Spengler: Der Untergang
des Abendlandes I-II. Múnchen 1918-22.