Skírnir - 01.04.1999, Page 80
74
ÓSKAR BJARNASON
SKÍRNIR
irmaður hans við Berlínarháskóla var enginn annar en Gustav
Neckel. I höndum Neckels og Diederichs var Thule orðið að
vopni gegn Weimarlýðveldinu.
Skobanakönnun um Thule-útgáfuna
Eddukvæðin í þýðingu Genzmers (1912, 1920) seldust prýðilega
enda norræn goðaveröld vel þekkt meðal Þjóðverja, ekki síst af
óperum Wagners, og talin tilheyra þýskum menningararfi. Árið
1932 var samanlagt upplag komið hátt í 30.000 eintök.72 Dieder-
ichs var að vonum ánægður og státaði af því að Eddan væri
„næstum“ orðin „þjóðarbók" í Þýskalandi.73 Þetta var engin met-
sala en á það ber að líta að Edda Genzmers var ekki eina Eddu-
þýðingin á markaðnum, auk þess sem efni eddukvæða var kynnt
og túlkað í fjölda rita um þýskar bókmenntir, sögu og germönsk
trúarbrögð, m.a. hjá forlagi Diederichs.74 Islendingasögur Thule
seldust hins vegar fremur illa á meðan Eugen Diederichs lifði og
allt til loka Weimarlýðveldisins. Engin þeirra náði 10.000 eintaka
upplagi og aðeins sex sögur 5.000 eða meira. Að sögn Diederichs
sjálfs seldust ekki nema um 500 eintök þeirra binda sem út komu
eftir stríð.75 Aðstandendum útgáfunnar virðist ekki hafa tekist að
sannfæra almenning um að þar væri sagt frá fortíð þýsku þjóðar-
innar og þeirri fortíð bæri mönnum að kynnast. Af þessu mætti
við fyrstu sýn álykta að sögurnar gætu ekki hafa leikið umtalsvert
hlutverk í þýsku menningarlífi.
72 Upplag 1. bindis, Heldendichtung, var komið í 28.000 eintök árið 1932. 2.
bindi, Götterdichtung und Spruchdichtung, lá fyrir í 25.000 eintökum.
73 Eugen Diederichs. Der deutsche Buchhandel, s. 40.
74 Diederichs gaf út m.a. Hans Naumann: Primitive Gemeinschaftskultur. Jena
1921; sami: Germanische Spruchweisheit. Deutsche Volkheit 17. Jena 1926;
Hans Hahne: Edda-Spiele. Jena 1927; Paul Herrmann: Altdeutsche Kult-
gebrduche. Deutsche Volkheit 54. Jena 1928; Hans Hahne: Totenehre im alten
Norden. Jena 1929; Wilhelm Grönbech: Nordische Mythen und Sagen. Jena
1929; F. W. Schaafhausen: Der Eingang des Christentums in das deutsche
Wesen I-II. Jena 1929-1931.
75 Verlagsarchiv des Eugen-Diederichs-Verlages (hér eftir: EDVA), Akzidenz-
en, 1. júlí 1929 - 30. júní 1930: E. D. til N. N., 26. apríl 1930. Stærstu upplögin
voru: Egils saga 9.000, inngangsrit Niedners 8.000, Njáls saga og Grettis saga