Skírnir - 01.04.1999, Page 85
SKÍRNIR ÞEGAR ÍSLENDINGAR URÐU FORFEÐUR ÞJÓÐVERJA
79
Weimartímans, um að hafa sótt innblástur til Thule-útgáfunnar.
Þessi ritstjóri Jungdeutscher Orden var heldur ekki einn um að
spyrða saman menningarleg markmið og stjórnmálaleg, en sú
tenging var einmitt fremur regla en undantekning á þessum tíma
hugmyndafræðilegra átaka í Þýskalandi.
Líkingamál margra svarenda um þjóð á sóttarsæng, sem þurfi
lækningar við, er dæmigert fyrir tungutak menningarsvartsýninn-
ar. Fjarlæg fortíð er hrein, óspillt og full af lífskrafti. Fortíðin er
ekki til að sigrast á með upplýsingu og framförum heldur skal
endurlífga anda hennar. Tíminn er samkvæmt þessum hugsunar-
hætti fremur hringrás en lína. Nokkrir svarenda taka skýrt til
orða í þessa veru. Þjóðfræðingurinn Herman Wirth sér í Thule
meðal við „andlegri og félagslegri kreppu“ nútímans (JI, s. 9).
Eugen Diesel rithöfundur vill spyrna gegn „framfaraákafa“
tækni- og vísindahyggju og „hættu á hruni allra gilda um hið
fagra, litríka og einstaka“ (DL, s. 101-102).86 Svar rithöfundarins
Friedrich Griese er mjög í anda Diederichs: „Thule-ritröðin hafn-
ar - bæði hvað varðar efni og anda - þeim samtíma sem forlagið
lét hana fæðast í, hún hefur ekkert með hann að gera; en hún flýr
hann ekki.“ Sjálfum finnst Griese sér vera „hafnað“ en vill berjast
áfram „fyrir okkar eigin hugsjón“ (JI, s. 21).
Alþingishátíð -„stjórnarskrárhátíð“ -þúsundárahátíð
Þótt Thule-útgáfan hafi verið kynnt sem framlag til Alþingishá-
tíðar íslendinga og lesendur hennar væntanlega verið vel kunnug-
ir Alþingi hinu forna, sýna fæstir svarendur því nokkurn áhuga.
Það er líka merkilegt að í skrifum Diederichsforlagsins er hvergi
minnst á að hátíðin tengist þingi á nokkurn hátt heldur er notuð
hin ranga nafngift „stjórnarskrárhátíð“ (Verfassungsfeier) eða
einfaldlega „þúsund ára hátíð“ (Jahrtausendfeier) án þess að af-
mælisbarnsins sé getið.87 Þetta er ekki byggt á misskilningi heldur
86 Eugen Diesel var sonur Diesels þess sem fann upp mótor sem við hann er
kenndur. Eugen er ef til vill tíknrænt dæmi um uppreisn menningarsvart-
sýnna hugsjónamanna gegn tæknihyggju og framfaratrú feðra sinna.
87 Sjá hér framar. í bréfaskriftum forlagsins er notað „stjórnarskrárhátíð“
(Tausendjahr-Verfassungsfeier eða 1000 jcihrige Bestehen seiner [Islands]