Skírnir - 01.04.1999, Page 90
84
ÓSKAR BJARNASON
SKÍRNIR
og nútíma kynþáttakenningum í senn. Fjórir svarenda, rithöfund-
arnir Hans Friedrich Blunck, Griese, Munchhausen, og Vill
Vesper voru meðal þeirra 13 „réttlínumanna" sem tóku sæti í
prússnesku skáldaakademíunni árið 1933 eftir frægar hreinsanir
nasista. Sá fimmti, Junger, hafnaði boði um inngöngu.93
Eitt fórnarlamb þessara hreinsana var Thomas Mann, en hann
var í þeim hópi manna (alls 61) sem ekki svaraði könnuninni.
Bréf hans til Diederichs frá því skömmu áður gefur ef til vill vís-
bendingu um ástæðuna. Þar færist hann undan því að tjá sig opin-
berlega um nýja bók um ástir og ástarlíf. Hann segir ritið ágætt
en hann sé ekki rétti maðurinn til að fjalla um efnið. Auk þess
þykir honum forleggjarinn taka of stórt upp í sig í bókarkynn-
ingu: ekki sé ástæða til að auglýsa sjálfa Goethe og Nietzsche sem
„guðfeður“ verksins.94 Spurning Thule-könnunarinnar var býsna
leiðandi og bauð tæplega upp á þátttöku þeirra sem unnu góðum
bókmenntum án þess að setja þeim háleit þjóðfélagsleg markmið.
Önnur og líklegri skýring á þögn hópsins er þó að þeir sem ekki
þráðu þýska þjóðernisvakningu innblásna forngermönskum anda
hafi hreint ekki lagt sig eftir íslenskum fornsögum. Loks hafa
menn haft öðrum hnöppum að hneppa eins og gengur, þar á
meðal væntanlega Bruning kanslari.
Hið nýja „norður“ kynþáttadulhyggjunnar
Innan um öll þekktu nöfnin í Thule-könnuninni fór kannski ekki
mikið fyrir nokkrum merkisberum kynþáttadulhyggjunnar
(.Rassenmystik), stefnu sem ekki var alveg ný af nálinni í Þýska-
landi en haldið hafði innreið sína í Diederichsforlagið með eftir-
minnilegum hætti. Gustav Kossinna, Ernst Fuhrmann og Herm-
an Wirth voru meðal þeirra sem hófu kyn germana eða „aría“ í
hæðir hins guðlega og beittu söguskýringum sem báru sterkari
keim af kynþátta- og dulhyggju en áður hafði þekkst. Fuhrmann
heldur því til að mynda fram í Tilraun til sögu Germana að hjá
93 Nánar í Óskar Bjarnason: Altislándische Literatur und deutscher Nationalism-
us, s. 68-72. Sbr. Uwe Ketelsen: Literatur und Drittes Reich. 1994.
94 Thomas Mann til E. D. Selbstzeugnisse und Briefe, s. 316.