Skírnir - 01.04.1999, Page 94
ÓSKAR BJARNASON
SKÍRNIR
Það var meðal síðustu verka Diederichs að ljúka Thule-útgáf-
unni því hann lést haustið 1930, sextíu og þriggja ára að aldri.
Hann varð því ekki vitni að þeirri athygli sem íslenskar forn-
bókmenntir nutu eftir að nasistar komust til valda í Þýskalandi.104
Synirnir, Niels og Peter Diederichs, löguðu sig fljótt að nýjum
aðstæðum og forlagið blómstraði meir en nokkru sinni áður.105
„Þjóðarútgáfa“ (Volksausgabe) eddukvæða varð metsölubók og
sögurnar seldust allvel í safnritum.106 Thule-útgáfan varð að
grundvallarheimild þjóðernissósíalískra fræðimanna, bæði í ger-
mönskudeildum háskólanna og í „Arfleifð" (Abnenerbe) Himm-
lers, uppeldisfrömuða og skólamanna, sem allir kepptust við að
halda „þjóðlegu" efni að ungum og öldnum. Viðtökur Thule-
útgáfunnar á árunum fyrir valdatöku nasista benda þó til að það
hafi síður verið þýskir lesendur sem báðu um meira af íslenskum
fornsögum, eftirspurnin hafi einkum komið „ofan frá“, frá
mennta- og menningarfrömuðum Þriðja ríkisins mótuðum í ólgu
Weimartímans.
104 Arthúr Björgvin Bollason: Ljóshœrba, villidýrið', Zernack: Geschichten aus
Thule.
105 Forlagið naut uppskerunnar af þeirri stefnu sem það hafði tekið á þriðja ára-
tugnum. Ritskoðunin fór um það allmildum höndum en mestu munaði um
að stríðsbækur Löhns og Edwins E. Dwinger færðu fyrirtækinu milljóna-
gróða. Diederichsforlagið taldist þó aldrei til áköfustu útbreiðenda nasista-
áróðurs. Florian Achthaler: „1930-1996: Die Verlagsentwicklung nach dem
Tod von Eugen Diederichs." Sammlungsort moderner Geister, s. 90-126, hér
102-108.
106 Die Edda. Volksausgabe (stytt útgáfa af þýðingu Genzmers) var prentuð á
nær hverju ári og 1945 var heildarupplag komið í 127.000 eintök. Utgáfan
öðlaðist sess meðal þjóðernissósíalískra kennslubóka sem sést best á því að
síðasta prentunin (síðustu 11 þúsund eintökin) var titluð „Sérútgáfa fyrir
Hitlersæskuna. Ekki til sölu“. Sögurnar stóðu áfram í skugga eddukvæða en
þó náði safnritið Thule. Ausgewahlte Sagas von altgermanischen Bauern und
Helden (Konstantin Reichardt gaf út. Jena 1934) 40.000 eintaka upplagi
samanlagt árið 1944. Auk þess leit dagsins ljós fjöldi þýðinga og endursagna
hjá öðrum forlögum. Sbr. ritaskrá í Zernack: Geschichten aus Thule, s. 380-
401.