Skírnir - 01.04.1999, Page 201
SKÍRNIR
ENDURSKOÐUÐ ENDURSKOÐUN
195
þjóðernishyggjan varð til að gefa þeirri sókn stóraukinn kraft og
metnað. Afgerandi staða stéttarinnar í pólitískri ólgu 19. aldar og
byrjun 20. aldar verður svo eðlilega enn meira áberandi vegna
fjarveru borgaralegrar millistéttar.
Ríkisafskipti og stjórnunarhyggja
Þegar kom fram yfir aldamót var jafnaðarsinnuð smábændahug-
myndafræði orðin ríkjandi í bændahreyfingunni: Annars vegar
boðaði hún markaðsstýrt hagkerfi smáframleiðenda, hins vegar
mátt samtakanna, samvinnu í vinnslu og sölu. Þetta var að hluta
til andkapítalísk hugmyndafræði, tortryggin á auðsöfnun einstak-
linga, tortryggin á frjálsa athafnasemi fjármagnsins út frá gróða-
sókn og markaðshagkerfi. Segja má að þetta hafi verið tvíbent
afstaða og jafnvægisgangur milli kapítalískra og sósíalískra hug-
mynda.
Framsóknarflokkurinn var stofnaður 1916, borinn uppi af
hreyfingu kaupfélaga og búnaðarfélaga, og hinni þjóðernissinn-
uðu ungmennafélagshreyfingu. Bændahreyfing þessi var vissulega
smáborgaraleg í eðli sínu en samt dreif hún upp borgaralega at-
vinnuvegi víða um landið í formi samvinnureksturs. Og hún var
öflug lýðhreyfing sem virkjaði mikinn fjölda bænda til þátttöku
í hagsmunabaráttu og pólitísku starfi. Hún breikkaði þannig
grundvöllinn undir lýðræðinu sem var í mótun, og gerði það
virkara - eins og verkalýðshreyfingin gerði að sínu leyti, litlu síð-
ar. Hugmyndafræðin birtist í vægi byggðasjónarmiða, stuðningi
við ýmsan smárekstur, oft fremur út frá samfélagslegri ábyrgð en
hámarksarðsemi. Hún birtist einnig í samvinnu Framsóknar-
flokksins við Alþýðuflokkinn á fjórða áratugnum, þar sem mót-
uðust ýmsir megindrættir í íslenskri pólitík næstu áratuga. Meðal
þeirra megindrátta var stuðningur við sterkt og aðgerðasamt rík-
isvald. Samkeppni var tempruð af samtökum framleiðenda og
seljenda, veruleg ríkisforsjá var í atvinnulífi, og samráð haft við
„hófsamari“ hluta verkalýðshreyfingarinnar. Þessir tveir flokkar
stóðu að uppbyggingu innlends iðnaðar í skjóli tollverndar frá
miðjum fjórða áratugnum. Það var reyndar alþjóðlegt fyrirbæri
sem viðbrögð við heimskreppunni.