Skírnir - 01.04.1999, Page 239
MYNDLISTARMAÐUR SKÍRNIS
c 4o( Fimm hundruð peysur
og lykkjuhreyfingar plánetna
Myndlistarverk Rdðhildar Ingadóttur
í desember SÍÐASTLIÐNUM lagði Ráðhildur Ingadóttir myndlistarkona upp
í ferð til Júgóslavíu með fimm hundruð flís-peysur í farteskinu sem hún
útdeildi til íbúa þorpsins Sremski Karlovci í Vojvodinahéraði, barna og
fullorðinna, karlmanna og kvenna. Gjafapeysurnar voru hluti af mynd-
listarverki hennar og þriðja „fataverkið" sem listakonan vinnur á síðast-
liðnum tveimur árum.
Forsaga málsins er sú að sumarið 1998 hafði myndlistarkonan haft
samband við alþjóðadeild Rauða krossins og skýrt frá því að hún væri að
vinna að myndlistarverki og væri hluti verksins fimm hundruð gjafa-
peysur. Flíkurnar skyldu gefnar fólki sem orðið hefði fyrir hamförum
vegna styrjaldar eða náttúru og var Rauði krossinn beðinn um að hafa
milligöngu um dreifingu peysanna til þeirra er á þyrftu að halda.1
Þótt hvert hinna þriggja fataverka Ráðhildar sé með sínu sniði, bæði
hvað snertir efni og innihald, eru nokkrir meginþræðir sameiginlegir. I
fyrsta lagi eru allar flíkurnar (bolir, kjólar og peysur eftir atvikum)
saumaðar úr flís-efni2 sem á hafa verið þrykktar geómetrískar3 teikningar
eða form er tengjast gjarnan stjarnfræði. I sumum tilvikum hafa textar
líka verið þrykktir á flíkurnar. Rétt er að taka það fram að flíkurnar í
fataverkum Ráðhildar eru ekki listaverkið sjálft, ekki „listhluturinn",
heldur hluti af ferli verks eða verkhugsun. Flugmyndin („konseptið") er
í öndvegi, ekki efni eða framsetning. Sem dæmi um mynstur á flíkunum
má nefna teikningar af brautum halastjarnanna Hale-Bopp og Hyakuta-
ke,4 teikningar af utanmynduðum og innanmynduðum spírölum, tíma-
1 Rauði kross íslands lagði til efni í peysurnar og öll önnur vinna var gefin;
Gerður Bjarnadóttir og Ásta Vilhjálmsdóttir bjuggu til snið, Saumastofan
Spor í rétta átt saumaði flíkurnar, silkiþrykkverkstæðið Nota Bene lánaði tæki
og aðstöðu til að þrykkja mynstur á flíkurnar og Júlía Embla Katrínardóttir
lánaði tökuvél og tók efnið upp ásamt myndlistarmanni í Júgóslavíu. Þá að-
stoðaði Ingibjörg Magnadóttir við tökur á verkinu hér heima.
2 Mynstrin eru silkiþrykkt á flís-efnið en hvorki aðferðin við þrykkingu form-
anna á efnið né efnið sem notað er skipta þó máli í samhengi verksins. Fata-
verkin eru hvorki textílverk né „hönnunarverk".
3 Geómetría eða rúmfræði er sú grein stærðfræðinnar sem fjallar um flatar-
myndir og rúmmyndir og eiginleika þeirra.
4 Brautir halastjarnanna sköruðust 11. apríl 1997, daginn sem fyrsta fataverkið
var sýnt á sýningarstaðnum Undir pari. í texta sem þrykktur var á ljósbláar
Skímir, 173. ár (vor 1999)