Skagfirðingabók - 01.01.1970, Page 24
SÍÐASTA AFTAKA í SKAGAFIRÐI
sigurjÓN björnsson tók satnan
I.
Síbasta aftaka í Skagafirði fór fram sumarið 1790. Þá var
aftekin í Helluhólma1 í Héraðsvötnum kona að nafni Ingibjörg, er
dæmd hafði verið frá lífi vegna dulsmáls.
Prentaðar heimildir um sakamál þetta og aðdraganda þess eru
næsta fátæklegar. í Árbókum Espólíns er þess stuttlega getið, og Gísli
Konráðsson víkur að því í einum af þáttum sínum.2 Auk þess er al-
þingisdómurinn prentaður í Lögþingisbókinni.3
Sú prentaða heimild, sem flestir munu hafa aðgang að, er eflaust
Sagnaþættir Gísla Konráðssonar. Þar er Ingibjörg, sú er líflátin var,
sögð Gísladóttir og frá Gili í Fljótum. Bræður þrjá átti hún: Jón, Þor-
vald og Ólaf. „Þeir bræður voru allra manna sterkastir þar um sveit-
ir, en kallaðir ójafnaðarmenn og harðskiptir. Systir þeirra var og all-
harðlynd". Síðan segir svo um Ingibjörgu: „.... hún var griðkona
bónda þess, er Páll Jónsson hét, á Hofstöðum í Blönduhlíð,4 en þar
hvarf af henni barnsþykkt. Leitaði Páll þá fast eftir, því hann var
maður harðgerr og óhlífinn, en hún synjaði þverlega og kallaði það
lygar Páls og annarra. En það varð bert að lyktum, að týnt hafði hún
barni sínu og grafið lík þess í fjóshaug á Hofstöðum, og fannst það,
er haugurinn var mokaður".
1 Helluhólmi er nú ekki lengur til. Hann mun hafa horfið, þegar Vötnin
breytm um farveg um og eftir aldamótin 1800.
2 Gísli Konráðsson. Sagnaþættir. Rvík 1946.
3 Útg. í Hrappsey 1789.
4 Páll Jónsson flyzt í Hofstaði árið 1785 og býr þar um 30 ára skeið.
22