Skagfirðingabók - 01.01.1970, Side 202
SKAGFIRBINGABÓK
Mylia var á Höfða, sem gekk fyrir vatnsafli. Tók Guðbrandur
oft að sér að mala fyrir sveitunga sína korn. Oft fór ég með korn frá
Mýrakoti til mölunar. Eitt sinn var ég sendur með tvo hundrað punda
poka, og voru þeir fluttir á klökkum. En svo illa vildi til, að hesturinn
datt, og fór annar pokinn af klakknum, en hinn snaraði reiðingnum
undir kvið. Ég var aðeins tólf ára gamall og langt frá því að geta látið
baggana upp aftur, lagaði samt reiðinginn og fór svo að hugsa málið.
Þarna var nokkuð þýft, og byrjaði ég að svipast um eftir stað, þar sem
Þúfnakollar stæðust á, ætlaði mér að velta pokunum upp á þúfur, en
hafa hestinn á milli þeirra, reisa síðan pokana upp, smeygja silanum
á klakkinn og láta svo hestinn draga þá ofan af þúfunum aftur,-en þá
mundu þeir setjast í sínar fyrri skorður. Eftir dálitla leit fann ég stað,
sem ég taldi heppilegan, en það ætlaði að reynast erfitt að velta bögg-
unum upp á þúfnakollana. Þó tókst það á endanum, en þreyttur
var ég orðinn. Þóttist ég hafa unnið þarna mikið þrekvirki.
í Bæ bjó á þessum tíma Jón Konráðsson, Jónssonar frá Miðhúsum
og síðar í Bæ, og Ingibjargar Gunnlaugsdóttur frá Hofstöðum. Hann
var kvæntur Jófríði Björnsdóttur frá Gröf. Jón var höfðinglegur í
allri framgöngu, svo að það má segja, að hann vekti á sér sérstaka at-
hygli hvar sem hann kom.
Jón var búhöldur góður og opinn fyrir öllum nýjungum. Meðal
annars gerði hann áveitu mikla á engjar sínar með því að stífla
Urriðalæk, sem rennur í gegnum Bæjarland; lækurinn er stór og á
upptök sín í svonefndum Kýlum, á landamerkjum Þrastarstaða og Hofs.
Hefur þetta verið mikið verk, því grafa þurfti langan skurð gegnum
malarkennt leirholt. Jón stofnaði einnig útgerðarfélag ásamt fleirum.
Keyptu þeir tvo vélbáta, „Valinn" og „Óskar" og eftir að „Óskar" fórst,
keyptu þeir vélbátinn „Trausta" sem þeir áttu í mörg ár og reynd-
ist mesta happafleyta. Af „Valnum" er það að segja, að hann reyndist
illa, var settur á land og stóð þar mörg ár.
Jófríður í Bæ var gerðarleg kona og mjög stjórnsöm. Áttu þau
hjónin þrjú börn, sem öll voru í skólanum með mér, vel gefin og
myndarleg.
200