Skagfirðingabók - 01.01.1970, Blaðsíða 115
SALA HÓLASTÓLSJARBA
8. Lágmúli
Jörðin var í eyði 1802 og dýrl. óviss. 1753 var búið þar og lsk. þá
20 áln. og kúg. 1. — Sr. Magnús Magnússon í Hvammi í Laxárdal
keypti jörðina á 12 rd. og lauk greiðslum 1812 með 8 rd. 31 sk.
9. Hvalnes
Dýrl. 1743 20 hundr., lsk. 1 hundr., kúg. 1, sem Jónas Scheving
sýslumaður keypti á 9 rd. 24 sk. Sr. Pétur á Miklabæ keypti jörðina á
148 rd. og greiddi til hlítar 1805.
10. Brókarlxkur V2, síðar Borgarlœkur
Dýrl. 5 hundr., lsk. 30 áln., kúg. Vi- — Ólafur eldri Ólafsson, bóndi
þar 1795—1822, keypti jörðina á 23 rd. og kúg. á 4 rd. 48 sk. Fyrsta
greiðsla 1807, 10 rd., lokagreiðsla 1813, 15 rd. 29 sk.
11. Selnes
Dýrl. 10 hundr., lsk. 80 áln., kúg. 1. — Björn Arngrímsson, bóndi
þar 1800—1814, keypti jörðina á 82 rd. og kúg. á 7 rd. 64 sk. Fyrsta
greiðsla 1805, 19 rd. 64 sk., lokagreiðsla 1812, 41 rd. 58 sk. Árið 1805
er Isk. 2 rd. 25 sk. Ábúendur 1842—1852 voru Jóhann Þorkelsson
og Ingibjörg Björnsd. og áttu þau jörðina.
12. Selá V2
Dýrl. allrar jarðarinnar 12 hundr., lsk. 30 áln., á hálfri jörðinni. —
Jónas sýslumaður Sheving keypti Vl kúg. á 4 rd. Guðmundur Grettis-
son, bóndi þar og einnig á Selnesi 1794—1800, en á Selá þar til hann
lézt 1804, 81 árs gamall, keypti jörðina á 47 rd. Jörðin var í eyði næstu
3 ár eftir dauða Guðmundar. Jörðin var fullgreidd 1805 með 47 rd.,
og er Guðmundur þá talinn fyrir jörðinni, en ekki er vitað, hver
greiddi. Árið 1805 er Guðmundur sagður hafa fengið öðrum kaup-
in í hendur, og er líklega átt þar við aðra en erfingja hans.
8
113