Skagfirðingabók - 01.01.1970, Side 101
SALA HÓLASTÓLSJARÐA
lokið.14 Reglugerðin, sem fylgja skyldi við söluna, er dagsett 13.
marz 180215 og fer hún hér á eftir:
„Skilmálar eptir hverjum Hólabiskupsstóls jarðagóz skal seljast.
Hans konúnglegrar Majestatis til Danmerkur og Noregs etc. etc.
Depúteraðir og Committeraðir í Rentukammer-Collegío gjörum vit-
anlegt: að eptir konúnglegri allran. skipan skal allt það jarðagóz, sem
híngað til hefir tilheyrt Hólabiskupsstóli og skóla samt biskupsekkjun-
um af þeim Commissaríer, sem allran. eru skikkaðir til að verðleggja
(taxere) allt jarðagóz á íslandi, uppbjóðast til sölu enum hæstbjóð-
andi, með eptirfylgjandi skilmálum:
1) Strax eptir að Commissaríerne hafa fengið allt það að vita, sem
þénað getur þeim til upplýsínga um jarða verðleggíng (Taxatíon)
skal uppboðið ske á þingstöðunum, án tillits til jarðanna nú haldins
dýrleika. — 2) Þau hæstu boð koma undir hans konúngl. hátignar
allran. samþykki þar eð kaupandinn eða enn hæstbjóðandi ei fá fyrri
eignarétt þar til en hún er inn komin. Hans konúnglegrar majestatis
allranáð. úrlausnar héruppá má væntast næsta ár eptir. — 3) Þau bú-
settu pláz eða hjáleigur, sem byggðar eru úr heimajörðunni, verða, ef
þær hafa afmarkað land, uppboðnar hver fyrir sig. — 4) Af kaupverð-
inu mega, hver sem helzt er hæstbjóðandi, Vi partar standa í jörðunni,
með því móti, að þar af svarist 4 pro Cento árleg renta, en ef leigu-
liðinn er hæstbjóðandi og verður eignarmaður jarðarinnar, gefst hon-
um sá frestur, að hann af þeim Vi parti verðsins, sem aðrir kaup-
endur strax skulu betala, þarf fyrst eptir 3 ár liðin að betala helmíng
þar af, eða Ve part af öllu verðinu, og síðan að öðrum 3 árum liðnum
hinn annann V(, part af öllu kaupverðinu. Þó stendur það kaupand-
anum í sjálfs valdi að betala meira, eða allt kaupverðið, ef honum
svo þóknast. — 5) Leiguliðar, sem fá til eignar þeirra ábýlisjarðir, eru
í 6 ár fríir að betala skatt af þeim. — 6) í þau fyrstu 3 ár eptir að
leiguliðinn er orðinn eignarmaður sinnar ábýlisjarðar, verður honum
eptirgefið svo mikið af kaupasummunnar rentum, sem þær eru hærri
en sú landskuld, sem hann áður mátti svara; sömuleiðis, ef hann inn-
an þessara þriggja ára betalar kaupverðið, eða nokkuð af því, verða
99