Skagfirðingabók - 01.01.1970, Side 66
SKAGFIRBINGABÓK
sannleiksgildinu. Ef hið sanna, sem kyrrt má liggja, hefur þau áhrif,
að menn búa við tómar hálfsagðar sögur um tiltekin efni, teprulegan
hálfsannleika, þá má svo að orði kveða, að rætur skröksins standi
í sannfræði, sem látin var gleymast. Þannig er það síður en svo þjón-
usta við sannfræðina, að láta ávallt satt kyrrt liggja af þægð við
aðra.
Texti Minningabrota er prentaður óbreyttur, nema stafsetning og
greinarmerki eru höfð eins og venja er til hér í ritinu. Greinaskilum
er breytt, þar sem til bóta þótti, nöfn bæja, sem frásögnin miðast
við, eru skáletruð, þegar þau koma fyrst fyrir, og sögnum í léttum
dúr af Steingrími á Silfrastöðum, skráðum á öðrum stað í handritum
höfundar, er skotið inn í þáttinn, af því að þær eiga ágæta samleið
með honum. Þær hafa borizt áður milli manna, en að ég hygg hvergi
betur sagðar né skilvíslegar en hér.
Skagf. æviskrár I—III flytja þætti allra þeirra búenda, sem nefndir
eru í Minningabrotum, utan Jónasar Jónssonar og Ragnheiðar Odds-
dóttur á Egilsá (bjuggu þar 1883—93) og Magnúsar Jónssonar og
Guðrúnar Hallsdóttur í Bólu, móðurforeldra Olínu (Magnús d.
1888, 59 ára). Þykir af þeim sökum þarflaust að fylgja þessari prent-
un eftir með skýringargreinum, en mannlýsingar Æviskránna, þær
sem hér eiga við, er sjálfsagt að hafa til hliðsjónar.
H. P.
MÉR hefir dottið í hug að rifja upp ýmislegt af því, sem ég
heyrði og kynntist í æsku viðkomandi körlum og konum í minni
sveit. Að vísu verður það allt í molum, því ég hefi gleymt mörgu frá
þeim árum.
Ég skrifa þetta að mestu til dægrastyttingar, og svo væri ekki óhugs-
andi, að úr því mætti tína einstöku fróðleiksmola, þegar tímar líða.
Ég ætla þá að geta um ábúendur á nokkrum jörðum, sem ég man
fyrst eftir.
Krókárgerði var þá innsta býli í Norðurárdal. Einu ábúendur þar,
sem ég man eftir, voru Sigurjóna og Sigurður Jónasson, bæði úr Eyja-
firði, orðin gömul og lúin og hún mjög heilsulítil. Bláfátæk voru þau,
en að sama skapi gestrisin og greiðasöm. Þau áttu uppkomin börn.
Eitt þeirra var Sigurrós, kona Trjámanns, sem bjó á Fagranesi í Oxna-
dal, þeirra dóttir Sigríður, kona Jóns Björnssonar, bónda á Hafsteins-
stöðum.
64