Skagfirðingabók - 01.01.1970, Blaðsíða 150
SKAGFIRBINGABÓK
á 131 rd. og kúg. á 9 rd. Hann seldi svo jörðina Birni Jónssyni á
Skálá 1805 eða fyrr, þá talinn á Skálá. Björn er sagður kominn í
Yzta-Hól árið eftir, en var þar stutt. Fyrsta greiðsla fór fram 1805, 43
rd., lokagreiðsla 1813, 40 rd. 77 sk., greitt af Sveini í Haganesi.
5. Mið-Hóll með Miðhólsgerði, gömlu tóftarbroti
Dýrl. 30 hundr., lsk. 50 áln., kúg. 5/6, sem Jón Jónsson, er þar
bjó, keypti á 8 rd. 6 sk. Björn Jónsson á Skálá keypti jörðina á 100 rd.
Fyrsta greiðsla fór fram 1805, 50 rd., lokagreiðsla 1812, 18 rd. 70 sk. —
Ábúandinn 1798—1806 heitir Jón Jónasson, skv. Jarða- og búenda-
tali.
6. Syðsti-Hóll
Dýrl. 13 hundr., lsk. 40 áln., kúg. 1, sem sr. Þórarinn Sigfússon í
Felli og síðar á Siglufirði keypti á 8 rd. 32 sk. Jörðina keypti hann á
70 rd. 16 sk. og greiddi að fullu 1805 með 72 rd. 1 sk.
7. Hraun V2
Dýrl. 10 hundr., Isk. 30 áln., kúg. Vi- Illugi Sveinsson, bóndi þar
(líklega d. um 1812), keypti jörðina á 36 rd. 80 sk. og kúg. á 3
rd. Lsk. 1805 1 rd. Kaupverðið greitt í einu lagi 1812, 48 rd. 19 sk.
8. Arnarstaðir
Dýrl. Syðsta-Hóls, Arnarstaða og Klóns ruglað saman í Lovs., en
leiðrétt hér.20 Dýrl. 30 hundr., lsk. 1 hundr., kúg. 1. — Jón Styr-
björnsson, bóndi á Gili í Fljótum 1787 til dauðadags 1806, keypti
jörðina á 300 rd. 48 sk., en Kröyer faktor kúg. á 12 rd. Fyrsta greiðsla
fór fram 1805, 229 rd. 50 sk., en lokagreiðslu innti Sveinn í Haganesi
af hendi 1813, 76 rd. 48 sk. — Johnsen segir annan ábúandann á
jörðinni 1844 vera eiganda hennar.
148