Skagfirðingabók - 01.01.1970, Blaðsíða 122
SKAGFIRÐINGABÓK
6. Giljir
Dýrl. 16 hundr., lsk. 60 áln., kúg. ekkert. — Jón Jónsson, bóndi
þar frá 1792, keypti jörðina á 48 rd. Hann dó 1803, en ekkja hans,
Guðrún Gísladóttir, bjó áfram til 1851, en er orðin leiguliði 1844.
Jarðarverðið var greitt í einu lagi 1806 með 49 rd. 88 sk. — Lsk. 1805
er 1 rd. 48 sk.
RÍPURHREPPUR
1. Egg og Rein
Dýrl. 50 hundr., lsk. 1 hundr. 20 áln., kúg. 4, segir í Lovs., en í
söluskrá 1805 eru seld kúg. aðeins 2 Jó. Sérmat 1802; dýrl. Eggjar 40
hundr., en Reinar 10 hundr. — Jónas sýslumaður Scheving keypti
hvorttveggja, og fór eignin á 100 rd., en kúg. á 21 rd. 2 sk. Scheving
keypti einnig jarðirnar Eyhildarholt, Keflavík, Ás og Vatnskot. Fyrsta
greiðsla í öllum jörðunum fór fram 1805, 476 rd. 77 sk., en loka-
greiðsla 1813, 21 rd. 41 sk.
2. Eyhildarholt
Dýrl. 10 hundr., lsk. 40 áln., kúg. 1. — Jónas sýslumaður Scheving
keypti hvorttveggja, og fór jörðin á 58 rd., en kúg. á 8 rd. Um
greiðslu sjá Egg. — Ari læknir á Flugumýri gekk inn í kaupin á Ey-
hildarholti, svo og á Egg og Rein, sbr. Skagf.fræði IX, bls. 85.
3. Helluland
Dýrl. 30 hundr., lsk. 1 hundr. 15 áln., kúg. ekkert. — Jón Halls-
son, bóndi þar 1796—1824, keypti jörðina ásamt eyðibýlinu Ásgríms-
stöðum á 120 rd. Söluskrá segir U/2 kúg. hafa verið selt, sem sr.
Magnús Árnason á Ríp hafi keypt á 12 rd. 8 sk. Fyrsta greiðsla fór
fram 1807, 24 rd. 77 sk., en lokagreiðsla 1812, 30 rd. 58 sk.
120