Skagfirðingabók - 01.01.1970, Blaðsíða 142
SK AGFIR6INGABÓK
20. lngveldarstaðir
Dýrl. 24 hundr., lsk. 80 áln., kúg. 1. — Ábúandinn, Sigurður Jóns-
son (d. 1805), keypti jörðina á 110 rd. og kúg. á 6 rd. — 1805 er
lsk. 3 rd. 72 sk. — Fyrstu greiðslu greiddi ekkja Sigurðar, 16 rd. 78
sk. Lokagreiðsla 1816, 139 rd. 58 sk. nafnverðs. 1828—1863 býr á
Ingveldarstöðum Guðmundur, sonur Sigurðar, og átti hann jörðina
skv. því, sem Johnsen segir.
21. Skúfsstaðir
Dýrl. 60 hundr., lsk. 2 hundr., kúg. 1, sem ábúandinn 1801—1809,
Ólafur Sigurðsson, keypti á 6 rd. 40 sk., en jörðina keypti Björn í
Neðra-Ási á 221 rd. og greiddi verðið 1805. — Skv. Jarða- og búenda-
tali var jörðin um skeið í eigu Jóns Jónssonar, bónda þar 1828—1840,
og Halls tengdasonar hans, er bjó á Skúfsstöðum 1841—1846. John-
sen segir og ábúanda eiganda 1844.
22. Garðakot
Dýrl. 20 hundr., lsk. 1 hundr., kúg. 1. — Jón Oddason, bóndi þar
1793—1805, keypti kúg. á 6 rd. og jörðina á 102 rd. og greiddi hvort-
tveggja 1805 með 108 rd. Árið 1834 kaupir jörðina Jón Guðmunds-
son, bóndi í Gröf á Höfðaströnd, að því er Jarða- og búendatal segir.
HOFSHREPPUR
1. Höfði
Dýrl. 60 hundr., Isk. 1 hundr. 60 áln., kúg. 2A. — Kröyer faktor á
Siglufirði keypti jörðina á 344 rd., en kúg. keypti Gísli Ásgrímsson
í Felli á 6 rd. 16 sk. Kröyer keypti og Bæ á Höfðaströnd. Fyrsta
greiðsla fyrir báðar jarðirnar fór fram 1805, 335 rd. sk., lokagreiðsla
1819, 97 rd. 23 sk. nafnverðs. — í grein, sem Gísli Brynjúlfsson
140