Skagfirðingabók - 01.01.1970, Qupperneq 30
SKAGFIR6INGABÓK
anlega haft tillit til þeirra, sem af leiða á lífinu með ásettu ráði
og að orsakalausu myrða eður drepa einhvörn saklausan einungis
til að gjöra ólukku, svo að þeir sjálfir missi lífið. Sé nú þetta
ekki tilgangurinn hjá einum morðingja, þá sýnist straffið, sem
fororðn. af 7. Febr. 1749 áleggur ekki eins vel að eiga heima hjá
öðrum en þeim, sem fremja þau illverk, er fororðn. af 16 Octobr.
1697 nafngreinir og önnur þeim jafngróf.
3to. Býður inngróinn náttúrlegur kærleikur einnar móður til síns
lífsafkvæmis heldur að geta til, að einhvörjar aðþrýstandi út-
vortis þrengingar, svo sem eftir þessarar Ingibjargar játningu
hér fyrir réttinum, ótti fyrir hrakningi manna á milli, örðugleiki
í því að framfæra þetta sitt barn, ásamt hinu er hún áður alið
hefur, með öðru fleiru, sem hennar fávizka ekki hefur þá strax
kunnað svo um að dæma sem bar, hafi framar en náttúruvonzka
og lyst til að fremja ólukku á sínu eigin afkvæmi leitt hana til
þessa stór-glæps, svo henni nokkuð vægja megi frá því harð-
asta straffi, er tilræðið í sjálfu sér annars hafi full verðskuldað.
Að öllu þessu vel yfirveguðu fellur því svolátandi Lögþingisréttar
dómur:
Ingibjörg Jónsdóttir, sem án þess að brúka þau reglulegu og til-
skikkuðu meðöl, sem henni og fóstrinu hjálpa kunnu, hefur í leynd-
um lifandi barn í heiminn fætt þann 14. sunnudag eftir Trínitatis
1788 og það síðan sjálf af dögum ráðið, skal fyrir þennan sinn guð-
lausa illverknað missa sitt höfuð með öxi og höfuðið uppsetjast á
stjaka, en kroppurinn grafast á aftökustaðnum. Þó má engin exsecution
ské á hennar lífi fyrri en sökin er hans Kongl. Majest. til allranáðug-
ustu úrlausnar framsend, eftir reskriptinu af 22. apríl 1758.
Delinquentinden og Defensor aðspurð fyrir réttinum hvort þau vilja
appellara frá þessum dómi til æðri réttar? Svara: Nej”.
Lögþingisdómurinn gekk til hæstaréttar og var staðfestur þar 26.
maí 1790.1 Dómsorðið var svohljóðandi: „Laugtings Dommen bör
ved magt at stande, dog saaledes at Delinquentinden Ingibiorg Jons-
Datter bör have sin Hovedlod og Jord, om hun nogen ejer, til Kong-
1 Sbr. Þjóðskjalasafn íslands 32. D. Kanc.
28