Skagfirðingabók - 01.01.1970, Blaðsíða 155
SALA HÓLASTÓLSJARÐA
kúg. á 50 rd. — Einar Guðmundsson, er bjó á Hraunum 1820—1848,
keypti jörðina af Bjarna 1840, segir í Jarða- og búendatali.
4. Lambanesreykir
Dýrl. 20 hundr., Isk. 1 hundr., kúg. 2. — Þorfinnur Magnússon,
bóndi þar, keypti hvorttveggja, jörðina á 120 rd. og kúg. á 17 rd. og
greiddi kaupverðið 1805.
5. Lambanes
Dýrl. 20 hundr., Isk. 1 hundr., kúg. 2. — Jón Ásgrímsson, er hætti
búskap í Stóra-Holti 1799, keypti jörðina á 154 rd. og kúg. á 18 rd.
— Jón var enn í Holti við manntalið 1801. Fullnaðargreiðsla 1805,
172 rd.
6. Brúnastaðir
Dýrl. 30 hundr., lsk. 1 hundr., kúg. 2Vi. — Jón Jónsson, bóndi í
Minna-Holti 1800—1806, keypti jörðina á 254 rd. 16 sk. og kúg. á
20 rd. Hann bjó síðan á Brúnastöðum 1806—1843 og ekkja hans
til 1852. Fyrsta greiðsla fór fram 1805, 206 rd. 16 sk. og kaupverðið
fullgreitt árið eftir með 52 rd.
7. Reykjarhóll og -kot
Dýrl. 30 hundr., lsk. 1 hundr., kúg. 2. Þau keypti Sesselja Einars-
dóttir, s. st., á 20 rd. 64 sk., en jörðina keypti Einar Guðmundsson,
vinnumaður á Molastöðum og bóndi á Reykjarhóli 1806—1808, á
251 rd. Fyrsta greiðsla fór fram 1805, 201 rd., lokagreiðsla árið eftir,
52 rd.
8. Hvammur, ásamt eyðibýlunum Höfn, Bakka og Hvammkoti
Dýrl. 60 hundr., lsk. 100 áln., kúg. 1 Vl- — Þorvaldur Gíslason,
bóndi þar (d. 1821), keypti jörðina á 350 rd. og kúg. á 15 rd. — Lsk.
153