Skagfirðingabók - 01.01.1970, Blaðsíða 126
SKAGFIRÐINGABÓK
1805 á Bjarnastöðum til dauðadags, 1824. Kúg. keypti Guðmundur
Guðmundsson, bóndi þar 1801—1805, á 8 rd. 48 sk. Greiðsla 1805,
245 rd. 77 sk., lokagreiðsla 1807, 102 rd.
6. Flugumýrarhvammur
Dýrl. 20 hundr., Isk. 1 hundr., kúg. 1. — Steingrímur Höskulds-
son, bóndi á Mið-Grund, keypti jörðina á 161 rd. Sveinn Jónsson,
ábúandi 1789—1808, keypti kúg. á 8 rd. 64 sk. Auk Flugumýrar-
hvamms og heimajarðar sinnar keypti Steingrímur Syðstu-Grund,
Syðri-Brekkur og Enni í Viðvíkursveit. Fyrsta greiðsla fyrir útijarð-
irnar var innt af hendi 1805, 229 rd. 92 sk., en 1813 greiðir Jón
sýslumaður Espólín lokagreiðslu, 157 rd. 8 sk. í söluskránni er Flugu-
mýri talin meðal þeirra jarða, sem Espólín greiddi, hvernig sem á
því stendur. — Flugumýrarhvammur komst í eigu Ara læknis á
Flugumýri.
7. Flugumýri og Réttarholt
Flugumýri og Réttarholt ásamt eyðibýlunum Torfmýri og Bygg-
hól, eldgömlu tóftarbroti. Dýrl. 100 hundr., Isk. 3 hundr. 67 áln., kúg.
214 á Flugumýri. Réttarholt var sérmetið. Dýrl. þess 24 hundr., lsk.
60 áln. og kúg. ekkert skv. Lovs., en söluskrá segir Böðvar Jónsson,
bónda þar 1789—1807, hafa keypt þar 114 kúg. á 15 rd. 24 sk. —
Með Flugumýri var hins vegar 1 kúg. selt, sem Hallgrímur Guðmunds-
son, er líklega hefur verið þar vinnumaður, keypti á 10 rd. 16 sk. —
Jarðirnar keypti Ari fjórðungslæknir Arason á 750 rd. Fyrsta greiðsla
1808, 208 rd. Lokagreiðsla 1812, 271 rd. 31 sk. — Jarða- og búenda-
tal segir, að jarðirnar hafi verið seldar Ara 1808, en það mun tæpast
rétt, því Ari er sagður kaupandi 1805. Hins vegar voru vöflur á því,
að Ari fengi Flugumýri þá þegar, og hefur áður verið skýrt frá ástæð-
um til þess. Ari bjó svo á Flugumýri 1801—1804 og 1808—1825.
1842 búa þar Sesselja Vigfúsdóttir, ekkja Ara læknis, og sonur þeirra,
Ari, en eru sögð leiguliðar.
124