Skagfirðingabók - 01.01.1970, Blaðsíða 67
MINNINGABROT
í Krókárgerði var vægast sagt hrörleg bygging. Mig minnir, að kotið
væri eitthvað í eyði, áður en þau fluttu þangað, þó getur það verið
misminni. Lítið var víst um gestagang þar og minna en húsbændur
óskuðu eftir, þó oft væru lítil föng í heimilinu. Þó var það eitt sinn
um vetur í skammdeginu, að Sigurjón póstur Sumarliðason kom
norðan yfir Oxnadalsheiði í ófærð, en asahláku. Þegar hann kom að
Norðurá, var komið myrkur. Með honum voru tvær stúlkur, mjög fín-
ar með sig, og ekki laust við, að Sigurjóni þætti nóg um. Þegar hann
fór að reyna að athuga ána í myrkrinu, leizt honum ekki á, hún valt
áfram kolmórauð með jakaburði. Hann sá, að ekkert vit var að leggja
í hana, sízt með kvenfólk, og tók því það ráð að brjótast yfir Króká
og fá gistingu í Krókárgerði. Það tókst, og komst hann þangað eftir
háttatíma, vakti þar upp og beiddist gistingar. Mig minnir, að í bað-
stofunni, sem hriplak, því slagveður var, væru aðeins tvö rúm. Hjón-
in klæddu sig upp úr rúmunum, sem voru víst fremur fátækleg, og
buðu konunum að hátta í þau, en þeim hefur víst ekki litizt vel á það
og kusu heldur að sitja í blautum fötunum. Sigurjón póstur sagði, að
rétt væri, að þær fengju að vita, hvað vetrarferðalög væru og ekki
stoðaði þar eintóm skrautklæði. Mig minnir, að Sigurjón og Sigurður
vektu yfir hestunum úti, því gripahús voru lítil og léleg. Þegar góð
stund var liðin, fór konunum að verða ónotalegt og tóku það ráð að
skríða upp í rúmið. Húsmóðirin spurði þær þá, hvort þær vildu borða
hjá sér heita kjötsúpu. Þær tóku dauft í það, en þegar þær sáu Sigur-
jón borða með góðri lyst, réðu þær af að reyna hið sama. Var nú sett
rúmfjöl ofan á þær í rúminu og þar settur á matur þeirra, en með
sýnilegum viðbjóði borðuðu þær. Húsmóðirin var þrifakona, þó fátæk
væri. Seinna var ég samtíða þessum hjónum á Kúskerpi, og þá sögðu
þau mér þessa sögu.
Á Fremri-Kotum bjuggu Friðrik og Sigríður Hallgrímsdóttir, systir
Ólafs á Kúskerpi. Efnalítil voru þau, en börn þeirra þá öll uppkomin.
Þau áttu tvær dætur og þrjá syni. Dæturnar voru Katrín, sem var kona
Jóns á Hömrum í Tungusveit, og Þóranna, giftist Guðmundi Árna-
syni. Þau dvöldu í Tungusveit, og Þóranna dó ung. Þeirra dóttir
Petrína. Synir Friðriks voru: Hallgrímur, sem fór til Ameríku, Sveinn
síðar bóndi á Ytri-Kotum og víðar; Baldvin hét sá þriðji, bjó í Héraðs-
65