Skagfirðingabók - 01.01.1970, Síða 137
SALA HÓLASTÓLSJARBA
Það mál samdist.13 Ábúandinn, Bjarni Jónsson (d. 1807), keypti
kúg. á 8 rd. Ábúandinn 1834—1854, Sveinn, sonur Sveins Jónssonar,
er bjó á Sleitustöðum 1808—1827 og eftir hann ekkja hans, 1827—
1834, hefur líklega átt jörðina að einum fjórða frekar en Sigurður
Þorsteinsson, er bjó á Sleitustöðum 1843—1849, en skv. Jarðatali
Johnsens átti annar ábúandinn 14 í jörðinni.
2. Smiðsgerði
Dýrl. 10 hundr., lsk. 40 áln., kúg. 1. — Ábúandinn 1799—1833,
Jón Matthíasson, keypti jörðina á 74 rd. og kúg. á 6 rd. 18 sk. Greiddi
kaupverðið 1805 með 80 rd. 18 sk., og er Jón þá sagður hafa selt
Birni Illugasyni í Neðra-Ási jörðina.
3. Sviðningur
Dýrl. 20 hundr., lsk. 1 hundr., kúg. 1 Vi- — Árni Halldórsson, er
bjó á Ljótsstöðum 1801—1804, en síðar í Bæ, Grímsey og á Stærra-
Árskógi í Eyjafirði, keypti jörðina á 170 rd. Kúgildið keypti Þorkell
Ólafsson, ábúandi 1793—1803, á 9 rd. — 1805 er lsk. 4 rd. 48 sk. —
Fyrsta greiðsla fór fram 1811, 72 rd. 75 sk., lokagreiðsla 1812, 121
rd. 22 sk. Johnsen segir tvo ábúendur vera á jörðinni 1844 og sé jörð-
in í eigu annars þeirra, en ekki verður séð, að það fólk sé neitt tengt
kaupanda.
4. Saurbœr
Dýrl. 20 hundr., lsk. 90 áln., kúg. 1. — Ábúandinn 1793—1814,
Ólafur Gunnlaugsson, keypti jörðina á 94 rd. og kúg. á 6 rd. 20 sk. —
Lsk. 1805 3 rd. 36 sk. — Fyrsta greiðsla 1807, 14 rd. 22 sk., loka-
greiðsla 1809, 12 rd. 72 sk. — Jón sýslumaður Espólín keypti Saur-
bæ 1808 á 94 rd.14
5. Skriðuland
Dýrl. 40 hundr., lsk. 2 hundr., kúg. 1. — Ábúandinn 1800—1819,
135