Skagfirðingabók - 01.01.1970, Síða 90
SKAGFIRÐINGABÓK
Þessi sundrung á heimili þeirra hjóna hefur vafalaust átt sinn þátt
í því, að Hannes ólst ekki upp í foreldrahúsum, og var honum komið
til Símonar Gíslasonar, bónda á Þorljótsstöðum, og konu hans, Snjó-
laugar Steinsdóttur. Þar var Hannes alllengi og minntist oft veru
sinnar þar með hinni mestu vinsemd og þakklæti. Oft gat Hannes
Símonar fóstra síns og vitnaði til þess, sem hann hefði sagt.1
Á Þorljótsstöðum var roskin kona, Signý Steinsdóttir, systir Snjó-
laugar.2 Hún tók Hannes að sér og annaðist sem hann væri hennar
eigið barn. Hún var sjálf barnlaus og lét Hannes sofa hjá sér. Þegar
Hannes stækkaði, fór einhver að stríða honum á því, að hann skyldi
sofa hjá kerlingunni, hálffullorðinn maður. Hannes svaraði fáu þar
til, en háttaði með fyrra móti um kvöldið, lagðist fram við stokk í rúm-
inu, og þegar Signý kom, sagði hann fastmæltur og ákveðinn: „Farðu,
Signý, ég vil þig ekki". Við þetta varð að sitja, og kerling fór og bjó
um sig annars staðar.
Eitt sinn á þessum árum var það, að fólkið hafði lagzt til svefns
í rökkrinu eins og alsiða var. Hannes gat ekki sofið og hefur leiðzt,
því ekki var kveikt, en heyrði þó, að Signý var vöknuð. Hann fór að
láta heyra til sín, eins og hann væri að éta eitthvað. Signý þótti þetta
með ólíkindum og segir: „Hvað ertu að borða, Hannes minn?" Hann
svaraði: „Ég er að tyggja myrkrið".
Á Þorljótsstöðum fór Hannes að vinna algenga sveitavinnu, þegar
hann hafði aldur til, var fyrst smali og þá einn heilu dagana og ekki
um nein áhrif að ræða frá öðrum. En á þeim einverustundum lærði
Hannes að hugsa og gat lifað sig inn í atburði, sem hann hafði lesið
um, séð eða heyrt. Þetta mátti vel greina, þegar hann sagði frá: þá
1 Hannes var á öðru árinu, þegar honum var komið í fóstur að Þorljótsstöð-
um og átti þar heima til nítján ára aldurs (1876). Símon lézt 14. júlí 1869
(ekki 4. júlí, eins og stendur í Búendatali), 66 ára gamall, og gaf hann Hannesi
„mikið fé eftir sig," segir í Mera-Eiríkssögu. Snjólaug lézt í Bjarnastaðahlið 16.
nóv. 1882, 74 ára gömul. (H. P.).
2 Signý dó á Þorljótsstöðum 17. jan. 1877, 66 ára gömul, þá húskona þar.
Þær systur voru dætur hjónanna Steins Ormssonar og Astríðar Stefánsdóttur á
Þorljótsstöðum. (H. P.).
88