Skagfirðingabók - 01.01.1970, Blaðsíða 133
SALA HÓLASTÓLSJARBA
67 sk. á nafnverði. Jarða- og búendatal segir, að jörðin hafi komizt í
eigu Svaðastaðaættar.
2. Enni
Dýrl. 20 hundr., lsk. 1 hundr., kúg. 1. Það keypti Þorleifur Brands-
son, bóndi þar 1792—1813, á 6 rd. 52 sk., en Steingrímur Höskulds-
son á Mið-Grund keypti jörðina á 114 rd. Um greiðslu sjá Flugu-
mýrarhvamm. Jarða- og búendatal segir, að Sveinn Jónsson, sem bjó
í Enni 1813 til dauðadags 1851, hafi átt jörðina. Kemur það heim
við Jarðatal Johnsens.
3. Ásgeirsbrekka
Dýrl. 50 hundr., lsk. 2 hundr., kúg. 2. — Gísli Árnason, bóndi í
Ásgeirsbrekku 1797—1803, keypti jörðina á 154 rd. og kúg. á 20
rd. 72 sk. Fyrsta greiðsla 1805, 78 rd. 72 sk., lokagreiðsla árið eftir,
102 rd. Gísli er ekki talinn leiguliði í söluskránni 1805. Jarða- og bú-
endatal segir, að Þorlákur Símonarson á Stóru-Okrum hafi keypt jörð-
ina 1811 á 250 rd. — Árin 1831—1848 bjó í Ásgeirsbrekku Eldjárn
Hallsteinsson, þess er bjó í Stokkhólma, og átti hann jörðina að sögn
Johnsens.
4. Hofstaðasel
Dýrl. 15 hundr., Isk. 1 hundr. 30 áln., kúg. ekkert. — Gísli konrek-
tor Jónsson, er þar var bóndi 1797—1806, keypti jörðina á 212 rd.,
og var greiðslu lokið 1805. Hofstaðasel komst, að sögn Jarða- og bú-
endatals, í eigu Benedikts prófasts Vigfússonar á Hólum.
5. Hofstaðir
Dýrl. 25 hundr., Isk. 1 hundr. 20 áln., kúg. IV2. — Páll Jóns-
son, bóndi þar 1785—1814, keypti jörðina á 246 rd. og greiddi verðið
131