Skagfirðingabók - 01.01.1970, Blaðsíða 148
SKAGFIRBINGABÓK
22. Miklibœr
Dýrl. 40 hundr., lsk. 1 hundr. 60 áln., kúg. 2. Þau keypti Jón Þor-
steinsson, bóndi þar 1782—1822, á 19 rd., en jörðina keypti Jón
Sveinsson, vinnumaður á Höfða, á 214 rd. 16 sk. Hann keypti einnig
Róðhól í Fellshreppi. Um greiðslu sjá þar.
23. Miðhús
Dýrl. 30 hundr., lsk. 1 hundr., kúg. 1, sem ábúandinn 1786—1803,
Einar Björnsson, keypti á 8 rd. 64 sk. Jörðina keypti Þorfinnur
Magnússon á Lambanesreykjum á 136 rd. Fyrsta greiðsla 1805, 278 rd.
42 sk., lokagreiðsla 1807, 26 rd. Þeir 75 rd., sem eftir stóðu, voru skv.
höfuðbók eftirstöðvar af kaupverði Þúfna. — Jarða- og búendatal telur
kaupanda hafa verið Jón Konráðsson í Gröf, eða ekkju hans, og er
áður sagt frá afturköllun Þorfinns á tilboði hans í jörðina Miðhús.
Þorfinnur er samt talinn fyrir greiðslum. Fyrsta greiðsla fór fram 1805,
278 rd. 42 sk., lokagreiðsla 1807, 26 rd. — Johnsen segir tvo ábú-
endur í Miðhúsum og eigi annar jörðina.
24. Þönglaskáli
Dýrl. 10 hundr., Isk. 60 áln., kúg. 1. Ábúandinn 1784— 1810, Jón
Grímólfsson, keypti jörðina á 90 rd. og kúg. á 6 rd. 32 sk. — Lsk. 1805
er 1 rd. 48 sk. — Fyrsta greiðsla fór fram 1807, 15 rd., lokagreiðsla
1813, 62 rd. 38 sk. Jón fór til sonar síns sama stað, er hann brá búi.
25. Bœr
Dýrl. 30 hundr., Isk. 1 hundr. 60 áln., kúg. ekkert. Kröyer faktor
á Siglufirði keypti jörðina á 281 rd. Hann keypti og Höfða. Um
greiðslu sjá þar. — Pétur Kröyer, sonur þess er keypti, bjó í Bæ
1841—1861 og átti jörðina. Sonur hans, Jón, bjó þar svo eftir hann
til 1889, er hann seldi, sbr. Jarða- og búendatal.
146