Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1997, Qupperneq 28
Múlaþing
Hvað rak á fjörur?
Þórarinsstaðafjörur:
69 númer trjáviður
3 stk. lestarhlerar
4 stk. hurðir
2 stk. púðar
7 stk. flosdýnur
1 stk. matressa
1922. Er þar með lokið sölu á strandgóssi
úr e/s Sterling. Þess skal og getið að
nákvæmt eftirlit hefur verið haft með
strandgóssi því sem rekið hefur úr Sterling
og það allt selt á uppboði nema það sem
getið er um í skilagrein fyrir andvirði
strandgóssins og selt var utan uppboðs fyrir
43 krónur.
Uppboðið á rekafjörunum
Rekauppboðið var haldið föstudaginn 2.
júní 1922. Fátt mun hafa rekið á fjörur eftir
að það var haldið, a.m.k. varð ég ekki var
við það eða heyrði þess getið. Þetta uppboð
mun hafa verið það lengsta sem lög-
reglustjórinn, Ari Amalds hélt við-víkjandi
strandi Sterlings en það stóð yfir í 13
klukkustundir samkv. reikningi. Var farið
með mótorbáti, svo sem vélbátar voru
almennt nefndir þá, á allar rekafjörur
beggja megin fjarðarins. Fyrst var haldið
sem næst strandstað og boðið upp það sem
rekið hafði á Sléttanes- og Ostabalafjörur,
einnig í Kerlingarbás, en þessir rekastaðir
eru allir utan við Ribbu. Aðrir reka- og
uppboðsstaðir í Brimneslandi vora Bæjar-
fjara, Langamöl, Hrólfsljara, Sleitunaust,
Hagabólsstaðir innan við Ribbu og þrír utan
hennar. Ekki er getið um reka utan við
Sléttanes, hvorki í Þorsteinsskálahöfn,
Kiðufjöru né annars staðar allt til
Borgamess. Vindáttin stóð líka af hafi inn
til fjarðarins þegar Sterling brotnaði. Við
þessi uppboð á níu stöðum í Brimneslandi
hefur verið allmikið labb og því tekið
mikinn tíma að ljúka þeim. í Selstaðavík,
allt frá Selstaðabæ við sjóinn og út til
Markhellna, voru nokkur sölunúmer. Ýmis
þessara sölunúmera á Norðurbyggð vora
sameinuð til uppboðssölu.
Það var vélbáturinn Aldan NS 202, um
16 smálesta brúttó að stærð, sem flutti
sýslumann og aðstoðarmenn hans í þessari
söluferð. Þessi litla fleyta var höfð til
strandferða á sumram frá Seyðisfirði til
Skála á Langanesi og þá með viðkomu á
höfnum þar á milli. Skipstjóri, Jentoft
Christiansen, var löngum í þessum ferðum
við annan mann. Aldrei heyrðist að honum
hafi hlekkst á í þessum ferðum sínum. Það
var einmitt með Öldunni sem fyrstu flutn-
ingarnir fóru fram vegna Sterlings-
strandsins því strax sama dag og Sterling
strandaði var Aldan send með farþega úr
Sterling og flutning þeirra norður til
Borgarijarðar og kannski lengra. Þetta er
nú að vísu útúrdúr í frásögn af uppboðsferð
sýslumanns en mér þótti viðeigandi að geta
að nokkru farkostsins og formanns hans
sem flutti lögreglustjórann í þessari
uppboðsferð.
Frá Selstaðavík kom Aldan suður yfír
ijörðinn og lagðist við Sjólystarbryggju,
sem var eign hreppstjórans, Sigurðar á
Þórarinsstöðum. Þá mun klukkan hafa ver-
ið um ijögur e.m.
Eg var viðstaddur rekauppboðið sunnan
ijarðar, hafði gaman af og reyndi að fylgjast
sem best með öllu en bauð þó aldrei í, enda
ófullveðja 13 ára drengur. Salan byrjaði
utast og hélt svo inn eftir ijöranni, svo sem
verið hafði á Norðurbyggð. Fyrst voru
seldar nokkrar viðarhrúgur sem vora á
26