Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1997, Side 115
Um Jökuldal
16. ágúst 1828. Faðir Sigvalda, Eiríkur
Styrbjamason, síðast bóndi á Hauksstöðum,
var afburðarmaður að afli og hjálparhella
mikil fátæklingum, svo mælt er hann hafi
fóstrað 19 börn munaðarlaus; enda búið 54
ár (f. 1722, d. 8. des. 1809). Þau hjón Krist-
ín og Sigvaldi bjuggu á Hafrafellstungu í
Axarfírði, ljetu þau heita Gunnlaug. Hann
var og merkur maður, bjó hann í Skógum í
Axarfírði; (f. 28. nóv. 1801, d. 5. júlí 1884),
faðir Sigurðar, er lengi bjó í Ærlækjarseli,
merkilegs manns (d. 28. des. 1899). Sol-
veig andaðist 10. okt. 1792, 64 ára. Maður
hennar var Einar Jónsson, Högnasonar,
Oddsonar, Arnasonar prests í Vallanesi
1602-1635, Þorvarðssonar. Þótti Einar
mætur maður og svo var kveðið um hann í
sveitarbrag:
„Einar Jónsson Eiríksstöðum stýrir;
æmprýddur er sá mann,
allir lofa er þekkja hann“.
Einar ljest 11. okt. 1811, 87 ára. Frá
honum er komið Einars nafn í ættinni. Ein-
ar sonur hans bjó fyrst á Kjólsstöðum, og
svo lengi á Brú; var hann fjörmaður og ljett-
leikamaður mikill til gangs alt fram á síð-
ustu ár. Hann dó á Brú 19. apríl 1847, 81
árs. Sonur hans einn hjet Einar og var
fæddur á Brú 21. maí 1802. Ólst hann þar
upp ogbjóþartil öskufallsins 1875 (d. 1881
á uppstign.dag). Hróðný dóttir hans fædd-
ist 14. des. 1841. Sonur hennar er síra Ein-
ar Pálsson í Reykholti (f. 24. júlí 1868). En
síðastur bóndi á Brú af þeirri ætt var Þor-
steinn sonur Einars. Bjó hann þar skamma
hríð um 1880. Hugvitsmaður, og um fleira
vel gefmn. Átti hann síðar heima á Odd-
eyri, í Hrísey, Borgamesi og Reykjavík, og
dóþarl902. Jökuldalur hefur alla tíð
verið talinn búsældar pláss, enda hafa þar
oft verið gildir bændur og góðir búþegnar,
Síra Þorvaldur Asgeirsson
Dalurinn er fremur hrjóstmgur, heyskapur
bæði reytingssamur og langsóttur, smáblett-
ir hingað og þangað í dalbrekkunum og
meðfram ánni, eða þá í heiðunum beggja
vegna ofan við dalbrúnimar, og er það sam-
feldara engi og allgott víða, rauðbreysking-
ur og ljósalykkja. Sumstaðar er og grávíðir
töluvert sleginn. Sauðland er þar ágætt og
útbeit góð á vetrum, enda beitt þar hörðu
við fje alment. En eigi eru yfírstöður tíðk-
aðar þar eins og áður var, og er það þó eng-
in framför.
Jökuldalur er afarlangur og þröngur.
Langt er þar bæja á milli, og áin verður eigi
riðin nema stöku sinnum á haustin, þegar
hún er sem allra vatnsminst. Em því drætt-
ir á henni hjer og þar. En fáir munu þeir
hafa verið framan af; og þegar Þorsteinn
Jónsson, forfaðir Melaættar, flutti búferlum
frá Hákonarstöðum austur í Mela í Fljótsdal
1774, fór hann yfír Jökulsá á Fjalarfæri
113