Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1997, Síða 73
Steinunn Kristjánsdóttir
Fomleifarannsókn á
Geirsstöðum í
Hróarstungu
Sumarið 1997 stóð Minjasafn
Austurlands fyrir fomleifarannsókn á
gömlu bæjarstæði í landi Litla-Bakka
í Hróarstungu. Uppgröftur hófst í byrjun
júnímánaðar og stóð til 8. ágúst.
Rannsóknin gekk samkvæmt áætlun og
þegar upp var staðið í lokin höfðum við
mokað upp 60 tonnum af mold.
Rannsóknin hafði nokkurn aðdraganda.
Sumarið 1996 fór fmmrannsókn á vegum
safnsins. Hún var gerð til að auðvelda val á
stað til frekari rannsóknar. Rannsökuð vom
sjö fom rústasvæði á Fljótsdalshéraði og
voru rústirnar í landi Litla-Bakka í
Hróarstungu meðal þeirra. Lítið var vitað
urn rústimar áður en frumathugun hófst en
ljóst var, þegar að lokinni könnun, að
staðurinn var mjög athyglisverður. Nafn
bæjarstæðisins, sem rannsakað var í
landareigninni, var þá óþekkt en það er nú
kallað Geirsstaðir. Þegar heildamiðurstöður
könnunarinnar lágu fyrir síðla hausts árið
1996 var ákveðið að rústirnar yrðu
rannsakaðar með fomleifauppgreftri sum-
arið eftir.
Unnið við uppgröft á Geirsstöðum sumarið 1997.
Ljósm. Steinunn Kristjánsdóttir.
Rannsóknin á Geirsstöðum er liður í
umfangsmikilli athugun á trúarbrögðum
Islendinga á fyrstu öldum byggðar
hérlendis. Rannsóknin fer fram á vegum
Minjasafns Austurlands og verður fram-
haldið næstkomandi sumar, ef ijármagn
fæst til þess. Kostnaður vegna rann-
sóknarinnar sumarið 1997 var að mestu
greiddur með styrk frá Rannsóknarráði
Islands en Minjasafnið stóð straum af hluta
hennar.
Við uppgröftinn sumarið 1997 unnu
fomleifafræðingarnir Sherry Curl frá Höfða
á Völlum og Howell Magnús Roberts frá
Reykjavík. Einn þjóðfræðinemi, Þómnn
Hmnd Oladóttir frá Hauksstöðum á Jökul-
dal, var ráðinn til rannsóknarinnar. Páll
Þórisson bóndi á Lindarhóli vann við
rannsóknina á vegum Tunguhrepps.
Leonardo da Vinci stofnunin lagði til einn
starfsmann, Libby Urquart, umhverfis-
fræðing frá Skotlandi. Anna Lísa Guð-
mundsdóttir, jarðfræðingur á Arbæjarsafni,
vann við uppgröftinn í vikutíma í júlí, auk
þriggja sjálfboðaliða sem voru við
uppgröftinn í einn til þrjá daga. Starfsmenn
Minjasafnisns, Bjöm Magni Bjömsson og
Helgi Valmundsson, aðstoðuðu við að girða
71