Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1997, Side 17
Sterlingsstrandið
Fyrir réttinum mætti Egill
Hrómundsson sjómaður [var háseti] til
heimilis í Oðinsgötu [svo] 17 hér í bænum,
18 ára að aldri, og var áminntur um
sannsögli. Var honum sýnt réttarskjal nr. 1
í þessu máli og kannast hann undir
eiðstilboð við að hafa kynnt sér rækilega
innihald þess og undirritað það síðan
sjálfur. Kveður hann einnig undir eiðs-
tilboð, það hafa inni að halda nákvæma,
sanna og rétta skýrslu um það, sem fram
hafi farið og máli skipti og sig engu hafa
þar við að bæta.
I réttinum er mættur O.G. Eyjólfsson
kaupmaður fyrir vátryggingarfélagið
„Danska Loyd”.
Fyrir réttinum mætti Karl Markússon,
áður bryti á Sterling, til heimilis á Frakka-
stíg nr. 9 hér í bænum, 23 ára að aldri, og
var áminntur um sannsögli. Að gefnu til-
efni kveðst hann hafa vátryggt vistir um
borð í Sterling hjá „Danske Loyd” fyrir
10.000 krónur. Kveðst hann ekki nú geta
gefíð skýrslu um hve mikið tjón hann hafí
beðið við strandið, því hann sé ekki búinn
að semja lista yfír það sem hann hafí misst.
Hann kveðst þess fullviss að vistimar hafi verið meira en 10.000 króna virði, því áður en hann
hafí lagt á stað í ferðina hafí hann keypt hér vistir fyrir 7- 8.000 krónur auk vista þeirra, er hann
átti í skipinu, er vom all miklar. Hann kveðst svo fljótt sem sér sé unnt mundu afhenda
umboðsmanni félagsins lista yfír tap sitt.
Upplesið, játað rétt bókað.
Nú mætti Þórólfur Beck skipstjóri aftur fyrir réttinum og svaraði spumingum formanns
sjódómsins um það hvers vegna hann hefði ekki minnkað ferðina á skipinu vegna þokunnar
eftir að það beygði fyrir Dalatangann, á þá leið að skipið gæti farið 12 sjómílur á klukkustund
[hlýtur að vera röng tala en talan 12 er í sjódómsbók. S.M.], svo það hefði ekki farið með fullri
ferð. Hann kvað skipið láta miklu betur að stjórn með ca 9 milna ferð, en minni og auk þess
hefði straumurinn þá borið meira úr leið. Hann kveður það sitt álit að hættan hefði engu minni
verið og slysið viljað eins til fyrir því þótt ferð skipsins hefði verið minni.
Upplesið, játað rétt bókað.
Framburðir hinna yfirheyrðu vom af hinum mættu teknir jafngildir og eiðfestir væru.
Sjóferðaprófinu lokið.
Sjóréttinum slitið. (Orðrétt endurrit S.M.)
Þórólfuy Beck, skipstjóri á Sterling.
Myndin er úr Óðni.
15