Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1997, Blaðsíða 33
Sterlingsstrandið
Skipshafnarskrá Þórólfs Beck (skrá lögreglustj. Reykjavíkur er
nákvæmari).
Ævisaga Þórólfs Beck er örlítið stytt.
Skeyti og bréf vegna farþegaflutnings, og fleiri hluta svo sem varnings í
skipinu, eru felld brott.
Síðari hluti greinar Vilhjálms Hjálmarssonar er felldur brott því efnið
tengist ekki strandinu.
Blaðafrásagnir af strandinu, aðallega úr Mbl., voru flestar skornar niður
nema þær hefðu að geyma upplýsingar sem ekki komu fram annars staðar.
Björgunarsamningar við Jóhann Hansson voru felldir brott.
Klippt var framan af grein Arna Vilhjálmssonar vegna þess að ekkert kom
þar fram sem ekki var áður búið að fjalla um.
Nákvæm lýsing á umhverfi strandstaðarins, þar með talin örnefni, varð að
víkja.
Kaflar úr prentuðum bókum sem ekki skiptu sköpum fyrir aðalefni
greinarinnar voru ekki teknir með.
Skrá yfir hafnir sem strandvörur voru sendar til er ekki með.
Skrár yfrir það sem rak á fjörur og bjargaðist með öðrum hætti eru mjög
mikið styttar.
Listi yfir þá sem keyptu strandgóss á uppboðum lenti undir hnífinn vegna
þess að heimilisföng vantaði mjög oft, nema þar sem utanbæjarmenn áttu
í hlut. Ekki sást heldur hver keypti hvað og þess vegna til lítils að prenta
alla rununa. Meðal utanbæjarmanna má nefna: Arna J. Sigurðsson,
Húsavík (eystri), Baldvin Jóhannesson, Stakkahlíð, Benedikt Blöndal,
Eiðum, Björn Jónsson, Snotrunesi, Hallgrím Þórarinsson, Ketilsstöðum,
Völlum, Jón Sigfússon, Snjóholti, Jón Stefánsson, Borgarfirði, Jónas
Þórarinsson, Hrafnabjörgum, Lúðvík Sigurðsson, Norðfirði, Ólaf
Bessason, Birnufelli, Pétur Guðmundsson, Hauksstöðum, Svein Jónsson,
Egilsstöðum, Sæmund Þorvaldsson, Norðfirði, Valdimar Snævar,
Norðfirði, Vigfús Þormar, Geitagerði, Þorstein Jónsson, Reyðarfirði,
Þorvald Hjarðar, Hjarðarhaga og Sófanías Stefánsson, Bárðarstöðum
Loðmundarfirði.
Reikningar vegna björgunar eru felldir brott.
Stuttur kafli um dvalarstað strandmanna á Seyðisfirði er ekki með.
Frásögn af kassa úr skipinu sem sökk áður en honum var bjargað var látinn
víkja.
Þá má að lokum nefna að ég hafði ekki frumrit þeirra opinberu gagna sem
tengjast strandinu og gat því ekki borið þau saman við uppskriftir
Sigurðar.
FNK
31