Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1997, Page 142
Múlaþing
Heimagrafreiturinn í Hraftisgerði þar sem Bjarni hvílir.
Ljósm. FNK.
Hagabjörg.“ Baldur heyrði að Bjama var
þetta hugleikið og þáði stígvélin. Bjami
gekk um berfættur á meðan, horfði á eftir
Baldri og sagði: „Það er myndarlegur og
góður drengur Baldur litli.“
Bjami sagði stundum frá liðinni tíð en ef
spurt var nánar út í það svaraði hann
vanalega: „Ja, það veit nú andskotinn“.
Dæmi: „Eg held að ég muni það nú þegar B.
var að ná í L. Eg fylgdi þeim frá Fjallsseli
inn í Hof. Við fómm stystu leið, út fyrir
ofan Miðhúsasel og svoleiðis beint inn eftir.
Þá vom þau alltaf að setjast niður á sömu
þúfuna og einhvem andskotann að kókitera
saman. Ég var að reyna að reka á eftir þeim,
svo við lentum ekki í myrkri, en það var eins
og að tala við steininn. A endanum skildi ég
þau eftir svo þau gætu dandólað nóg.“ Þá
var spurt hvemig þetta hefði farið. „Ja, það
veit nú andskotinn.“
Bjami varð giktveikur með aldrinum og
mjaðmaliðimir kölkuðu. Hann gekk þá á
milli bæja með stafprik í hendi, aleiguna á
bakinu og lét fótinn fæða sig, eins og kallað
var. Þá lét hann einnig flytj a sig á bíl. Páll
bróðir minn átti gamlan vörabíl. Bjami
bað hann oft að fara með sig á bæi og sagði
þá stundum eitthvað á þessa leið: „Ég ætla
að biðja þig Palli minn að skreppa með
gamla manninn. Það er betra að hreyfa
bílinn. Hann getur skemmst á því að
standa lengi kyrr.“ Eitt sinn bað hann
bónda að sækja sig í Kross. Bjami hafði
hringt fyrir hádegi og horfði eftir bílnum
fram á kvöld. Að lokum segir hann:
„Hann kemur ekki enn. Ætli hann komi
fyrr en í nótt. Hann er bestur á nóttunum,
þetta helvíti.“
Þegar heilsu Bjarna hrakaði fékk
oddvitinn, Helgi Gíslason, hann til að fara
á sjúkrahúsið á Seyðisfírði. Þar dó hann í
desember 1965. Nóttina eftir dreymir mig
að Bjami kemur. Verð ég undrandi, því
Fjarðarheiði var ófær, og spyr hvemig
hann hafí komist. „Ja, það er nú gott að
fara núna. Ég fór bara beint en ég vildi
koma við til að kveðja, því ég fer annað
héðan.“ Gamli maðurinn var glaður og
140