Skagfirðingabók - 01.01.2011, Blaðsíða 26
26
SKAGFIRÐINGABÓK
að nefna Vilhjálm Þ. Gíslason sem var
bókmenntaráðunautur útvarpsráðs, við
hlið starfs síns sem skólastjóri Verslun-
arskólans, og átti Andrés góð skipti
við hann frá upphafi. Tónlistardeildin
starfaði sér, tónlistarstjóri var Páll Ís-
ólfsson en aðrir sáu um dagleg störf að
mestu. Stjórn leikritaflutnings var
með ýmsum hætti þessi ár, þar til Þor-
steinn Ö. Stephensen var ráðinn í nýja
stöðu leiklistarstjóra árið 1947. En
um allt þetta efni þurfti að hafa yfirlit
á skrifstofu útvarpsráðs og koma dag-
skránni þar í heillega mynd.
Helgi Hjörvar átti að stýra starfinu
en verkstjórn var honum ekki hent.
Hann vildi helst sjálfur sífellt lesa í
dagskránni og naut mikilla vinsælda,
ekki síst sem sögulesari. Árið sem
Andr és hóf störf, 1944, hafði lýðhylli
Helga einmitt náð hámarki þegar
hann las Bör Börsson eftir Johan Falk-
berget og hefur ekki annað eins orð
farið af nokkrum sögulestri í útvarpi
fyrr eða síðar. Helgi þýddi söguna
sjálfur, en frumkvæði að útvarpsflutn-
ingnum átti Pálmi Hannesson. Helgi
annaðist einnig þingfréttir í hjáverk-
um, svo að starfsmennirnir urðu einatt
að finna sér verkefni sjálfir. Starf
Andr ésar var nokkuð vítt samkvæmt
sam þykkt útvarpsráðs. „Samvinnsla
útvarpsefnis“ er fremur óljóst hugtak,
en orðin minna á dagskrárform sem
þróaðist á næstu árum, ekki síst fyrir
tilverknað Andrésar og nefndist „sam-
Útvarpsráð á 1000. fundi sínum, 22. febrúar 1949, ásamt nokkrum starfsmönnum. F. v.:
Jónas Þorbergsson útvarpsstjóri, Páll Ísólfsson tónlistarráðunautur, Vilhjálmur Þ. Gíslason
bókmenntaráðunautur, Ólafur Jóhannesson útvarpsráðsmaður, Jóhann Hafstein útvarpsráðs-
maður, Jakob Benediktsson, formaður útvarpsráðs, Helgi Hjörvar, skrifstofustjóri ráðsins
(standandi), Stefán Pjetursson útvarpsráðsmaður, Sigurður Bjarnason útvarpsráðsmaður,
Andrés Björnsson, fulltrúi á skrifstofu ráðsins, Jón Þórarinsson tónlistarfulltrúi.