Skagfirðingabók - 01.01.2011, Blaðsíða 65
LANDNEMAR Í VESTURHEIMI
leika í vöggugjöf og gott uppeldi í
foreldrahúsum sem hún bjó að alla tíð
og ótvírætt hafa verið henni mikill
styrkur á lífsleiðinni. Dýrunn var fríð
sýnum, fremur smávaxin, gædd mikl
um þokka, glaðleg í viðmóti, skarp
greind og skemmtileg í samræðum.
Hún var einstaklega gestrisin og lað
aði að sér gesti og gangandi, enda var
mik ið um gestakomur því aðalvegur
inn lá skammt frá Víðirhóli í Fram
nesbyggð, og síðar í Riverton. Hún
var sérlega hjálpsöm þeim er áttu erf
itt og leituðu margir til hennar sem
áttu við erfiðleika að etja eða bág kjör
að búa. Dýrunn var orðin „goðsögn“ í
lifanda lífi og hélt andlegri reisn sinni
til æviloka. Þannig er henni lýst í fyrr
nefndri bók: History of Arborg and
Distr ict 1889–1987.
Afkomendur Gísla og Dýrunnar eru
orðnir hátt á annað hundrað. Fjöldi
þeirra er búsettur í Kanada og hefur
tek ið virkan þátt í uppbyggingu og
þróun NýjaÍslands. Margir þeirra
hafa verið í forystuhlutverki fyrir
framförum og nýjungum á ýmsum
sviðum og látið mikið að sér kveða. En
einnig eru afkomendurnir dreifðir
Magnús, sonur Dýrunnar
og Gísla, og kona hans,
Ástríður Einarsdóttir.
Magnús var fæddur 8.
maí 1887 á eyjunni
Heklu, hann var 11 ára
þegar hann fluttist þaðan
með foreldrum sínum til
Ísafoldarbyggðar.
víða um heim og hafa blandast öðrum
þjóð um. Þær ungu kynslóðir sem nú
eru að vaxa upp eiga vonandi eftir að
leita uppruna síns og kynna sér ævi
for feðra sinna. Talsvert margir hafa
heimsótt ættingja hér á landi og þann
ig hafa myndast mjög ánægjuleg og
góð tengsl á síðari árum. Í tímaritinu
Lögbergi 30. apríl 1953, er minningar
grein um Dýrunni Steinsdóttur Árna
son. Þar birtist eftirfarandi ljóð sem er
undirritað B.J.H.
Hæg var hinsta stundin
hérvist er þú kvaddir,
laus við legu langa
lífs þjáninga raddir.
Svefninn sæll er vinur,
sem þig örmum vafði,
böndin heims öll brostin,
burtför ekki tafði.
Aldurs elzta kona,
okkar varst þú byggðar,
manni sínum meður,
með landnámi tryggðar,
afkomur sem áttu
óskir vona sinna,
framtíð góða færa
fljótt þar sjálfstæð vinna.
65