Skagfirðingabók - 01.01.2011, Blaðsíða 178
SKAGFIRÐINGABÓK
Þær hafa líklega orðið varar við bílinn,
sem kom með jarðýtuna og fylgt hon
um, af eðlislægri forvitni, suður veg
inn að Kollugerði, þar sem vélin var
tekin niður. [32]
Líkur benda til þess að Eirík Ey
lands hafi keyrt vélina frá Kollugerði
heim að Hólum að kvöldi komudags.
Þá um kvöldið, þegar menn sátu að
snæðingi í matsal skólans, barst um
ræðan að þúfnabönunum og notkun
þeirra við sléttun túna. Eirík sagðist
þá geta skafið þúfurnar burt með
ýtunni og sléttað þannig landið. Eftir
kvöldmatinn fóru menn út og Eirík
ók ýtunni niður á þýfðan blett, sem
var sunnan við heimreiðina á Hólum.
Þar renndi hann ýtunni tvær ferðir og
sneiddi þúfurnar af þannig að eftir
varð rennislétt grasflöt með moldar
förum eftir þúfurnar. Jóhannes Reyk
dal minnist ferðar norður að Hólum,
með afa sínum Árna G. Eylands, tíu
árum síðar eða 1954. Þá var flöt þessi
eins og lítill fótboltavöllur og þúfur
allt í kring, en litlu seinna var allt
svæðið sléttað þannig að þetta fyrsta
verk með jarðýtunni á Hólum sést
ekki lengur. [19]
Í Tímanum 25. júlí 1944 er viðtal
við Árna G. Eylands sem nefnist Helm
ingi meiri eftirspurn um búvélar en hægt er
að fullnægja. Fyrri hluti þess hljóðar
svo:
Árni G. Eylands framkvæmdastjóri
Búnaðardeildar S.Í.S. er nýkominn til
bæjarins úr ferðalagi norðanlands.
Eirík Eylands var fæddur í Reykjavík
19. apríl 1924 og lést 22. okt ó ber
1998. Foreldrar hans voru hjónin
Marg it Eylands, fædd Fosst v ei t, f. 5.
ágúst 1896, d. 12. maí 1986, og Árni
G. Eylands framkvæmdastjóri, f. 8.
maí 1895, d. 26. júlí 1980. Eirík
útskrifaðist vélfræðingur frá Oslo
tekn iske skole árið 1948 og stundaði
einnig nám við norsku Búnaðartækni
stofn unina. Hann starfaði hjá Véla
sjóði 1948–1955 við eftirlit með véla
kosti rækt unarsambanda, kennsl u á
traktor námskeiðum og við skurð
gröfur Véla sjóðs. Hann starfaði hjá
Matvæla og landbún aðarstofnun
Sam einuðu þjóð anna (FAO) í Róm og
Pakistan 1955–1957, Búnaðar sam
bandi Eyja fjarð ar 1957–1961 og var
deild arstjóri hjá Vega gerð ríkisins í
Reykjavík frá 1961 þar til hann lét af
störfum vegna ald urs. [24]
Eirík Eylands um 1943.
Eigandi myndar: Þóra Eylands.
178